Fara í efni

SKÚLI, VEÐURSTOFAN OG BORGARBYGGÐ

Ekki beinlínis samstæð fyrirsögn við fyrstu sýn en verður skiljanleg við samnefnara þessa pistils: Áform um að selja ljósleiðara Orkuveitu Reykjavíkur.
Það sem mér þykir best við málflutning Skúla Helgasonar borgarfulltrúa Samfylkingar um málefnið er tvennt.
Í fyrsta lagi þykir mér tillaga Samfylkingarinnar sem hann virðist hafa verið í málsvari fyrir um að aukinn meirihluta þurfi til þess að taka afdrifaríkar ákvarðanir á borð við sölu ljósleiðarans eða innviða yfirleitt.

Forsenda breyttra stjórnmála

En það sem mér þótti ekki síður gott er að skilja mátti á Skúla eftirsjá eftir ákvörðunum í þessa veru frá fyrri tíð af hálfu Samfylkingarinnar. Upp í hugann kemur ákvörðun þáverandi meirihluta í Reykjavík fyrir fáeinum árum um að hefja sölu á Orkuveitunni. Í mínum huga er það grundvallarforsenda fyrir því að laga megi stjórnmálin að menn viðurkenni mistök og reyni að rétta kúrsinn. Þetta sýnist mér Samfylkingin í borginni vera að reyna að gera með tillögu sinni og er það til fyrirmyndar og til eftirbreytni.

Vísir hefur það eftir Skúla úr viðtali við hann á Bylgjunni að í umræðu í Borgarráði “hafi hann bent á að það séu í fortíðinni mál, eins og einkavæðing bankanna, sem hafi verið ein af forsendum hrunsins 2009. Svo megi nefna sölu Símans og Hitaveitu Suðurnesja. Það sem nærtækast sé fyrir borgina sé þegar hlutur hennar í Landsvirkjun var seldur. “Það eru nákvæmlega tuttugu ár síðan það var gert,“ segir hann og að þeirra rýning í það sýni að borgin hafi misst af um 70 milljörðum í arðgreiðslur, þar af 50 milljörðum bara síðustu fimm árin.”

Óskhyggja?

Ef til vill les ég of mikið í orð Skúla Helgasonar um sinnaskipti í Samfylkingunni því Skúli vill hafa vaðið fyrir neðan sig og samkvæmt Vísi „Samfylkinguna ekki í prinsippinu á móti sölu allra eigna“.
Hér er þessi fréttaumfjöllun úr Bítinu á Bylgjunni og í Vísi sem hér er vitnað til:

https://www.visir.is/g/20262964740d/aukinn-meiri-hluta-eigi-ad-thurfa-til-ad-selja-mikil-vaega-inn-vidi

Tæpitungulaust í þessu máli talar Kristín Jónsdóttir á Veðurstofu Íslands. Í umfjöllun sinni á Vísi er fjallað um gagnrýni Kristínar á sölu ljósleiðara Orkuveitunnar:
“Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri jarðskjálfta og jarðhniks hjá Veðurstofu Íslands, gagnrýndi sölu Ljósleiðarans í síðustu viku í færslu á Facebook. Þar sagði hún söluna glórulausa. Hún benti á að hann nýttist við bæði náttúruvöktun og rannsóknir á jöklahreyfingum, jarðskjálftum, snjóflóðum og öðrum náttúrufyrirbærum.”

(Fyrirsögn af vef RÚV 13/11)
En ekki er öll von úti því í umfjöllun RÚV kemur fram að allir eigendur Orkuveitunnar þurfi að samþykkja söluna, þar á meðal Borgarbyggð. Þar innanborðs séu fulltrúar Samfylkingar og VG. Varla samþykkja þeir slíka sölu - eða hvað? Mér er spurn. Eitthvað er óljóst um afstöðu sveitarstjórnarmanna þar, sbr. leiðréttingu í blálok RÚV fréttarinnar en svo er að skilja að sveitarstjórn eigi eftir að taka málið fyrir.
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-12-ljosleidarinn-naer-til-um-80-heimila-og-verdur-bodinn-til-solu-492417

Fljótt fennist yfir

Við munum mörg, ekki öll – því miður fennist fljótt yfir ósannindavaðal fyrri tíma – að okkur var sagt að þrátt fyrir sölu Landssímans yrði grunnnetið aldrei selt. Svo var það selt. Og svo rækilega var Míla seld að eignarhaldið fór til Frakklands, endaði hjá frönskum fjárfestum. Eitthvað fóru menn þá að hafa áhyggjur af öryggishagsmunum Íslands. En ekki meira en svo að eignarhluti í þessu öryggiskerfi landsmanna hefur að undanförnum verið til skoðunar hjá spekúlöntum á erlendum mörkuðum. Þar er ekki spurt um öryggi Íslands heldur hvort íslenskur ljósleiðari sé örugg gróðalind.

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)