ELDMESSA ÁRNA – ALÞINGISMENN KRAFÐIR SVARA!
Árni Guðmundsson, háskólakennari og æskulýðsfrömuður, krefur alþingismenn svara um mótsagnir í málflutningi þeirra, þeir kalli eftir forvörnum fyrir börn og ungmenni gegn áfengis- og vímuefnum en tali jafnframt máli áfengisiðnaðarins og styðji lagabreytingar í hans þágu; lagabreytingar sem ganga þvert á þessi markmið.
Um langt árabil hefir Árni Guðmundsson á hinn bóginn verið sjálfum sér og sínum málstað samkvæmur. Hann hefur stundum þurft að fara á móti straumnum en sýnt aðdáunarverða staðfestu.
Nú er hins vegar svo komið að sá málstaður sem hann er í forsvari fyrir, ásamt ýmsu góðu fólki sem einnig hefur staðið þessa vakt, nýtur stuðnings ALLRA foreldra – og lýðheilsusamtaka landsins, ALLRA heilbrigðsisstétta landsins auk landlæknisembættisins. ALLIR þessir aðilar vilja varðveita það sölufyrirkomulag á áfengi sem við höfðum búið við og ÖLL hafa þau varað við þeim breytingum sem úlfarnir í sauðagæru á Alþingi beita sér fyrir.
Það er löngu mál að linni, það er ólíðandi að alþingismenn, þar með ráðherrar og ríkisstjórn, láti í ljós áhuga á forvörnum en geri síðan allt annað í reynd.
Þetta er eins óheiðarlegt og verða má.
Ég tek undir það með Árna Guðmundssyni þegar hann krefur þingmenn svara:
„Þessir þingmenn þurfa að svara því hvernig stuðningur þeirra við frumvarp sem vitað er að eykur aðgengi barna og ungmenna að áfengi samræmist þessum yfirlýstu áherslum viðkomandi.“
Ég hvet alla lesendur til þess að lesa frábæra grein Árna Guðmundssonar sem birtist á vefsíðunni vísi.is í gær undir fyrirsögninni Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu.
Fyrir þingmenn ætti þessi grein að vera skyldulesning.
Hana má nálgast hér: https://www.visir.is/g/20262950291d/af-threyttasta-frumvarpi-islenskrar-thingsogu
--------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)