Fara í efni

EINAR MÁR ER SKÁLD MEÐ SKOÐUN

Þegar þjóðin stefndi hraðbyri, nánast sem læmingjahjörð, fram af bjargbrúninni á fyrsta áratug þessarar aldar var í það minnsta einn rithöfundur sem reisti sig með viðvörunarorðum. Þau féllu almennt í fremur grýttan jarðveg þótt síðar hafi allir séð að Einar Már Guðmundsson hafði lög að mæla. En það var eftir Hrun.

Einar Már hafði skoðun og þótt hún væri þvert á hið viðtekna hélt hann sig við hana, skrifaði Hvítu bókina sem auðveldaði vinstri mönnum að endurstilla kompásinn. Nú er heldur betur þörf á slíku á nýjan leik, allt gerist nú falt, vatn og rafmagn – þar eru milliliðir nú orðnir á annan tuginn og rafmagnsreikningarnir eftir því; útsýni til fjalla og nálægð við hveri og fossa skal gjaldskyld, hervæðing er orðin mál málanna og gagnrýni á allt þetta komin í mýflugumynd.

Og þá verður mér hugsað til Einars Más. Fyrir nokkrum árum gerði Arthúr Björgvin Bollason ásamt samstarfsmönnum heimildarþátt um Einar Má og var hann sýndur í Sjónvarpinu í janúar 2025. Samsvarandi þættir höfðu verið gerðir um nokkra aðra rithöfunda, man til dæmis eftir frábærum þætti um Þórarinn Eldjárn sem ég sagði frá hér á síðunni.

Til stóð að gera slíkt hið sama með aðra skáldaþætti og þá ekki síst þáttinn um Einar Má. Einhverra hluta vegna var hann hins vegar ekki aðgengilegur á vef RÚV þar til nú og gríp ég tækifærið og gef hér með lesendum vefslóð til að nálgast hann. Sjálfur átti ég nokkur orð um skáldið í þættinum en ég hef lengi kunnað að meta Einar Má sem rithöfund. Lífsafstaða hans og skoðanir falla og um margt að því sem mér þykir eftirsóknarvert.
Einar Már Guðmundsson er með öðrum orðum skoðanaskáld að mínu skapi:
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/einar-mar-gudmundsson-i-auga-oreidunnar/34051/a4nh9h

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)