BYRJAÐ Á OKKUR
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 03/04.10.26.
Almennt er byrjað á stóru myndinni vilji menn skilja hina smærri. Horft er til Trumps, Xis, Pútins, Carney og Von der Leyen. Löngu síðar kemur að Mette Frederiksen og Þorgerði Katrínu. Og löngu, löngu síðar að mér og þér.
En ef við nú byrjum á mér og þér, hvað gerist þá? Það fannst mér ég sjá þegar ég las í þessu blaði frásögn tveggja skipverja á Jökulfelli Samskipa sem svarað hafði kalli NATÓ um að taka þátt í vopnaflutningum til Persaflóans þar sem stríð var að brjótast út.
Þessi för árið 1991 var sannkölluð hættuför enda hafði hún djúptæk áhrif, ekki aðeins á skipverjana sjálfa heldur einnig á aðstandendur þeirra.
Frásögnin var laus við upphrópanir og kannski þess vegna áhrifarík. Hún minnti á hver áhrif stríð hefur á mannfólkið, ógnina sem því fylgir, jafnvel þótt menn séu ekki sjálfir í skotgröfunum.
Fjarri þeim gröfum eru Trumpar þessa heims sem berja sér á brjóst og segjast reiðubúnir að berjast til síðasta manns, sjálfir ætli þeir þó ekki að deyja og helst ekki við heldur. Til þess sé vígvæðingin.
Minnt hefur verið á nýlega samninga sem Íslendingar hafa gert við Bandaríkjamenn um frelsi þeirra til athafna á Íslandi, umfram það sem áður var, og að nú vilji Þjóðverjar einnig svigrúm hér til hernaðarumsvifa. Það er ekki bara stóri Trump heldur líka litli Trump sem vill veita okkur öryggi. En við erum ekki ein. Sambærilegir samningar hafa verið gerðir á öllum hinum Norðurlöndunum. Þar eru nú á fimmta tug nýrra bandarískra herstöðva og hafa Norðurlöndin þar með bæst í hóp 52 ríkja sem nú hýsa Bandaríkjaher til «varna».
En hvernig má það þá vera að heimurinn verði sífellt óöruggari fyrir mig og þig?
Afkomendur danskra þrælasala – þeirra sömu og seldu Bandaríkjunum nýlendur sínar í Karíbahafinu fyrir aðeins hundrað árum - seldu þeim í vikunni í hendur yfirráð yfir Grænlandi, öryggismálum, ráðstöfun auðlinda og réttinn til að ákvarða milliríkjasamninga.
Rutte, framkvæmdastjóri NATÓ virðist ánægður með Daddy eins og hann hefur kallað Trump og Von der Leyen faðmar að sér Carney sem stakk upp á því á auðmannafundinum í Davos í byrjun árs að ESB og Kanada sameinuðust á næst efstu hæðinni í valdapíramída heimsins – einni neðar en hæð þeirra Trumps, Xis og Pútíns.
En hvernig væri að við á neðstu hæðinni segðum að nú væri nóg komið af yfirgangi auðlindaþjófa og vopnasala.
Tími er kominn til að rísa upp af hnjánum.
--------------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)