BORGÞÓR KJÆRNESTED KVADDUR
Í dag fór fram útför Borgþórs Vestfjörð Kjærnested í Seltjarnarneskirkju. Séra Bjarni Þór Bjarnason jarðsöng og fórst vel úr hendi. Í minningarorðum hans kom sitthvað fram sem ég ekki vissi áður, þó höfum við Borgþór oft setið að skrafi og hann sagt mér margt um æsku sína, líf og störf. En í orðum séra Bjarna kom til dæmis það fram að Borgþór hét Borgþór vegna þess að faðir hans var Borgfirðingur og Vestfjörð hét hann að millinafni vegna þess að móðir hans var Vestfirðingur. Foreldrarnir voru þannig báðir til staðar í nafni sonarins. Þessi óvenjulega hugkvæmni segir sitthvað um genin í manninum enda var hann um margt óvenjulegur.
Eftirfarandi fékk ég birt um Borgþór í Morgunblaðinu í dag:
„Það segir sitt um Borgþór Kjærnested að hann skuli ekki hafa verið nema átján ára gamall þegar hann ákvað að halda á vit ævintýra út í heim, félítill og fákunnandi um framandi slóðir. Þetta var árið 1961. Hvorki styrki né námslán að fá og ekkert starf í hendi. En bréf upp á vasann hafði hann frá sómamanni í pólitíkinni sem bað félaga sína i útlandinu fyrir hann, að sjá til þess að hann yrði aldrei einn. Þetta mun hafa verið að undirlagi áhyggjufullrar móður. En bréfið dugði. Framar öllu var það þó efniviðurinn í hinum unga manni sem skipti sköpum. Fyrirheitna landið var Finnland þar sem hann átti eftir að vera búsettur meira og minna næstu átaratugi. Þar kynntist ég Borgþóri eða öllu heldu þar rifjuðum við upp okkar fyrri kynni á vettvangi fréttamennskunnar þar sem leiðir okkar stundum höfðu legið saman áður en ég bankaði upp á hjá þeim Sólveigu í Helsinki um miðjan níunda áratuginn. Þá var ég fréttaritari Sjónvarps á Norðurlöndunum og fór á milli landa þegar kosningar eða annað markvert var að gerast.
Hjá Borgþóri fékk ég allt að vita um finnsk stjórnmál og þjóðmál yfirleitt því enginn Íslendingur komst þar með tærnar þar sem Borgþór hafði hælana í þekkingu á málefnum Finnlands í samtíma og frá fyrri tíð. Sögu lands og þjóðar þekkti hann til hlítar. Um það bera vitni ítarleg skrif hans og merk sagnfræðirit á borð við bók hans sem út kom fyrir tæpum áratug, Milli steins og sleggju – saga Finnlands.
Um langt skeið var Borgþór framkvæmdastjóri Norræna farmannasambandsins. Harðdrægari varðgæslumann sjómanna hefði það samband ekki getað fengið. Ungi drengurinn sem fór út í heim einn á báti og nánast allslaus vissi hverju samstaða um góðan málstað fær breytt. Hinn góði málstaður sem Borgþór beitti sér fyrir var ekki síst bundinn þeirri kröfu að látið yrði af þeim ljóta sið að skrá skip í svo fjarlægri höfn að enginn yrði finnanlegur til þess að bera ábyrgð á réttindum farmanna um borð í skipunum. Þegar ég gegndi þingmennsku fann ég fyrir Borgþóri að berjast fyrir þessum málstað gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Alltaf var hann að og alltaf með hagsmuni farmannsins í huga.
En fyrst og fremst fann ég fyrir nálægð góðs vinar sem ég átti margar spjallstundir með. Ég lærði þá margt um uppvöxt Borgþórs Kjærnested og hve mikið var í hann spunnið. Það var þungt í honum pundið og hvar sem hann beitti sér munaði svo um hann að eftir var tekið.
Ég sakna þess að hafa ekki skráð niður frásagnir Borgþórs Kjærnested úr lífhlaupi hans. Þar var nefnilega að finna efnivið í hetjusögu.
Fjölskyldu og aðstandendum öllum sendi ég samúðarkveðjur.“
Mörgu öðru er að minnast í samskiptum okkar Borgþórs. Vil ég þá sérstaklega minnast ferðar okkar til Palestínu í janúar árið 2005. Borgþór var skipuleggjandinn en ferðalangarnir vorum við Eiríkur Jónsson, þáverandi formaður Kennarasambands Íslands. Þessi ferð var okkur Eiríki og að ég held Borgþóri einnig ógleymanleg þótt Borgþór hefði það umfram okkur að vera orðinn kunnugur á þessum slóðum.
Þegar hryllingurinn á Gaza hófst - sá sem enn stendur - vildi Borgþór halda suður. Og það held ég að hann hafi gert. Því þótt hann færi sjálfur hvergi var hann með hugann fórnartlömbum þjóðarmorðsins á Gaza. Ekki var sá samstöðufundur sem hann ekki reyndi að komast á. Urðum við stundum samferða.
Það er skarð fyrir skyldi við fráfall Borgþórs Vestfjörð Kjærnested.

Slóðir á skrif mín frá umræddri ferð okkar þremenninga til Palestínu árið 2005 er að finna í þessari samantekt: https://www.ogmundur.is/is/greinar/palestina
--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)