Fara í efni

BOÐIÐ TIL FUNDAR Í HÁDEGINU NÆSTA MÁNUDAG

Hrikalegir atburðir eiga sér nú stað í Mið-Austurlöndum. Staðan er flókin og margslungin.

Það sem gerist á einum stað hefur áhrif á öðrum. Það á ekki síst við um Sýrland. Þar tókst Ísraelsmönnum, Bretum og Bandaríkjamönnum endanlega að setja Assad forseta af en viti menn, þeir sem settir voru til valda í hans stað eru harðlínu íslamistar sem nú skyndilega eru komnir með áru hinna hófsömu í vestrænum fjölmiðlum. Hver útkoman verður undir stjórn þeirra veit enginn með vissu en þó er vitað að enn sem komið er hafa þeir ekki bundið enda á ofbeldi!

Nýir valdhafar í Damaskus úr Al Nusra samtökunum eru sögulga nátengdir ISIS og síðar Al Qaeda. Hin síðari ár hefur íslömskum vígasveitum í norðanverðu Sýrlandi verið stýrt frá Tyrklandi og þá ekki síst gegn Kúrdum í sjálfstjórnarhéraðinu Rojava. Sjálfsvörn Kúrda í Rojava hefur vakið heimsathygli fyrir margra hluta sakir, ekki síst vegna framgöngu kvenna, áherslu á jafnrétti og lýðræði en þó kannski framar öllu öðru vegna þess að Kúrdarnir í Rojava voru þeir einu sem réðu við ISIS og Al Nusra sveitirnar og skylda hópa sem margir hverjir börðust undir merkjum Frjálsa sýrlenska hersins, Free Syrian Army, síðar Free National Army, sem stjórnað var frá Tyrklandi.

Nær viðstöðulaust og fram á þennan dag hefur tyrkneski herinn og málaliðar hans haldið upp stöðugum árásum á Kúrdabyggðirnar. Bandaríkjamenn hafa veitt Kúrdum í Rojava stuðning – takmarkaðan þó og aldrei að því marki að þeir yrðu ógn við NATÓ-ríkið Tyrkland. Þessi stuðningur Bandaríkjamanna hefur þó orðið til þess að halda Tyrkjum að einhverju marki í skefjum.

En þarna er hver að hugsa um sig og þá Kúrdarnir væntanlega einnig en þeir segjast enga vini eiga nema fjöllin. Og þegar upp er staðið hefur ekkert ríki veitt þeim stuðning sem dugar gegn skefjalausu ofbeldi árum saman.


Í febrúar var mannréttindadómstóllinn Permanent People´s Tribunal kallaður saman í Brussel til að rannsaka og komast að niðurstöðu um ofbeldið á hendur Kúrdum í Rojava.

Væntanlegir til landsins eru höfuðsaksóknararnir, Ceren Uysal og Jan Fermon að greina frá niðurstöðum dómstólsins. Það gera þau á hádegisfundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu mánudaginn 23, júní.

Ég hvet alla sem kost eiga á að mæta og fá þessar niðurstöður beint í æð og vonandi öðlast einnig betri skilning á stöðunni fyrir botni Miðjarðarhafs.

Fundurinn verður stuttur en ég lofa því að hann verður fróðlegur.
Velkomin sem flest!

------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/