BJARGVÆTTUR OG BÖLVALDUR
Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 11/12.07.26.
Ég var aldrei mikið gefinn fyrir vísindaskáldsögur um óráðna framtíð. Það voru þá helst sögur sem höfðu augljósa skírskotun til samtímans, skrifaðar með það fyrir augum að vara við því sem gæti stefnt í hefðu menn ekki varann á. Framtíðarhrollvekja Orwells, 1984, er dæmi þar um.
En nú hef ég verið tekinn í bólinu. Vísindaskáldsögurnar sem ég taldi vera fáfengilegan hugarleik sáu margar þróunina býsna vel fyrir. Veruleikinn hefur meira að segja tekið fram úr þeim flestum.
Nýlega hlýddi ég á sérfræðing úr mannréttindageira Sameinuðu þjóðanna, konu með bakgrunn í bandarískri lögreglu, segja frá því hve mikilvægt það væri að missa aldrei sjónar á hinu mannlega í samskiptum á ögurstundum sem upp kæmu. Henni hefði þó brugðið í brún þegar hún nýlega kom í lögreglustöð þar sem henni var einkar vinsamlega tekið. Í ljós hefði svo komið að það var gervimaður sem sýndi henni svo mikla vinsemd. Hún kvað slíka tækni sífellt oftar nýtta og sagði frá gervihundi sem hefði snuðrað uppi sprengjur, fundið þær og þar með hugsanlega bjargað lífi lögreglumanna. Hvenær kæmi að því að í útkall færi sjálfkeyrandi bíll, með gervilögreglumenn, sem tækju við kvörtunum og afgreiddu mál til loka? En hver yrðu þau lok?
Í athyglisverðu viðtali við formann Lögmannafélags Íslands í Spegli RÚV var sagt frá því að bresk lögfræðistofa hefði látið gervigreind senda lögformlegt innheimtubréf og höfða mál í framhaldinu. Málið hefði unnist. Upplýst var að gervigreindin væri þegar farin að gegna ákveðnu hlutverki í íslenska réttarkerfinu eins og annars staðar. Þróunin væri mjög hröð, enda gervigreindin öflugt verkfæri sem væri freistandi að grípa til.
En hverju breytti það ef ágreiningsmál yrðu útkljáð af gervigreindarsækjanda, verjanda og dómara?
Ég hef stundum vakið máls á niðurstöðum í réttarkerfinu sem orka vægast sagt tvímælis og hef þar í huga tiltekin ofbeldismál, illa rannsökuð af hendi lögreglu, ófaglega frágengin í heilbrigðiskerfinu, og niðurstaða dómara illa grunduð. Eftir hafa staðið einstaklingar sviptir frelsi og æru. Hefði gervigreindin staðið sig betur, gengið betur eftir faglegum niðurstöðum? Hefði hræðsla við óvæginn tíðaranda verið henni síður fjötur um fót en mennsku dómurunum? Eða hefði inni í hennar vinnu verið að finna uppsafnaða fordóma réttarkerfisins - mannlegan breyskleika í milljónasta veldi?
--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)