Fara í efni

BARÁTTA FYRIR JÖFNUÐI OG FRIÐI - GEGN ARÐRÁNI OG OFBELDI

Í dag - hinn fyrsta maí - er baráttudagur verkalýðsins fyrir jöfnuði og réttlæti. Þetta tvennt fer saman. Þjóðfélag án jafnaðar er ekki réttlátt. Í jöfnuðinum er á hinn bóginn fólgið réttlæt þótt meira þurfi vissulega að koma til svo réttlætinu séu gerð skil, tjáningarfrelsi og virðing fyrir mannréttindum alls fólks verður þar aldrei skilið að.

Í dag sem endranær á þessum degi minnir íslensk og alþjóðleg verkalýðshreyfing á það hve mikilvæg samstaðan er um þessi gildi. Sjaldan hefur verið eins mikil þörf á árvekni verkalýðshreyfingarinnar og nú og að hún beini ekki aðeins sjónum inn á við og reisi þar skorður við ásælni gróðafla heldur einnig út í hinn stóra heim þar sem arðránsöfl nýlendurstefnunnar eru vígreifari og opinskárri um glæpsamleg áform sín en þau hafa verið í langan tíma.

Í orðum og gjörðum Bandaríkjaforseta og hirðarinnar í kringum hann er ekkert dulið en gjalda ber einnig varhug við þróun mála í gömlu nýlenduveldum Evrópu. Þar læðist fasisminn inn og sums staðar er hann hættur að fara með veggjum. Skoðanakúgun og fangelsanir færast í vöxt. Þau sem rísa gegn yfirgangi ráðandi afla eru fangelsuð án dóms og laga, réttar og rangar skoðanir eru skilgreindar í stjórnarráðum, ekki í dómssal; samstöðugöngur gegn hernaðarofbeldi og þjóðarmorði eru bannaðar, «ótilhlýðilegum» fyrirlesurum í háskólum úthýst ...

Gegn þessari þróun þarf íslensk verkalýðshreyfing að beita sér með því að tala skýrum rómi réttlætisins frá þeirri stöðu sem þarf að tryggja Íslandi: Herlaust land, utan hernaðarbandalagsins NATÓ og Evrópusambands auðvaldsins.

-----------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)