Fara í efni

ALÞJÓÐLEGUR SAMSTÖÐUDAGUR MEÐ ROJAVA

Í dag – fyrsta febrúar – eru haldnar samstöðusamkundur með Rojava, sjálfstjórnarhéraði Kúrda í norðanverðu Sýrlandi. Ein slík verður í Reykjavík í dag klukkan 14 og verður gengið frá Hallgrímskirkju að Alþingishúsinu.
Kúrdar í Sýrlandi gerðu á árinu sem leið - og nú ítrakað - samkomulag við stjórnina í Damaskus um leysa þrætur friðsamlega. Damaskusvaldhafar eiga rætur í Al Nusra og ISIS en núvernadi stjórn Sýrlands var komið á laggirnar af Ísrael, Bretum og Bandaríkjamönnum að því er fregnir sem mér finnst trúverðugar herma. 

Damaskus stjórnin hefur síðan minnt á sitt innsta eðli með fjöldamorðum, nú síðast í Alleppo þar sem Kúrdar hafa verið fórnarlömbin. Áður hefur Damaskus stjórnin beint morðsveitum sínum að Drúzum og Alavítum.

Samstöðufundirnir eru haldnir til þess að minna heimsbyggðina á að hafa augum á Rojava svo hún geri allt sem í hennar valdi stendur til þess að knýja ráðandi öfl í Sýrlandi, það er nýlenduveldin bæði gömul og ný að hemja handbendi sín í Damaskus og láta þau virða samkomulag um friðsamlegar lausnir á deilumálum í Sýrlandi og sjálfstjórn Rojava.

Sjá nánar:

ANF | Statement from 39 political parties and movements in Rojava regarding the agreement

ANF | YPG fighter Baran calls for mobilization

ANF | KNK Co-Chair: Threats against Rojava continue

----------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)