ALFRED DE SAYAS ÓMYRKUR Í MÁLI UM ÁRÁSIR Á ÍRAN: EKKI Í MÍNU NAFNI - NOT IN MY NAME
Í morgun hófu Ísraelsmenn og Bandaríkjamenn loftárásir á Íran. Viðbrögð berast víða að vegna þessa glæps sem mörgum þótti fyrirsjáanlegur; „samningaviðræður“ BNA og Íran hafi aldrei verið annað en sjónarspil, Ísrael hafi alla tíð viljað að þessar árásir yrðu hafnar sem fyrst og þótti sýnt að Trump myndi hlýða því kalli. Stríðshaukar fagna, friðarsinnar harma.
Í morgunsárið sendi Alfred de Zayas frá sér yfirlýsingu vegna árásanna. Fáir hafa skrifað meira - og af meira viti - en hann um alþjóðalög og fáa hef ég hitt sem eru eins staðfastir málsvarar alþjóðalaga en hann er. Alfred de Zayas er margreyndur í mannréttindastarfi hjá Sameinuðu þjóðunum og heimsþekktur fyrir skrif sín um mannréttindamál; lesendum þessarar síðu vel kunnur eftir heimsókn hans til Íslands þar sem hann flutti erindi í Safnahúsinu í Reykjavík og í kjölfarið ræddi Karl Héðinn Kristjánsson við hann í sjónvarpsþætti á Samstöðinni:
https://www.ogmundur.is/is/greinar/zayas-fra-safnahusi-i-samstodina
Alfred de Zayas segir í yfirlýsingu í morgun:
„Ólöglegar árásir Ísraelsmanna og Bandaríkjanna á Íran eru gróft brot á alþjóðalögum. Ef einhvern tíma hefur verið framinn „árásarglæpur“ samkvæmt Rómarsáttmálanum, þá er það þessi. Alþjóðaglæpadómstóllinn verður að grípa til aðgerða - eða skella í lás.
Alþjóðasamfélagið verður að refsa Ísrael og Bandaríkjunum með efnahagslegri sniðgöngu fyrir þessar ólögmætu aðgerðir. Annars erum við öll samsek í að eyðileggja alþjóðalög.
Trump er EKKI að „verja bandarísku þjóðina“ með því að ráðast á Íran. Trump er að setja bandarísku þjóðina í miklu meiri hættu á hryðjuverkum og setja heiminn á barm þriðju heimsstyrjaldar. Sem Bandaríkjamaður segi ég „ekki í mínu nafni“.
Alfred de Zayas this morning:
The Israel-US illegal attacks on Iran constitute a gross violation of international law. If there ever was a "crime of aggression" under the Statute of Rome, this is it. The ICC must act -- or close shop.
The international community must Boycott-Divest-Sanction Israel and the United States for their systematic outlawry. Otherwise we are all complicit in the destruction of international law.
Trump is NOT "defending American people" by striking Iran. Trump is putting the American people at a much higher risk of terrorism and placing the world on the brink of World War III. As an American I say "not in my name".
----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)