ALDREI ÉG
Birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 14/15.11.26.
Við vitum hvernig hægt er að afbaka sannleikann.
Við vitum hvernig reynt er að hafa áhrif á það hvernig fólk hugsar.
Við vitum hvernig hægt er að stýra atburðarás í smáu og stóru.
Við vitum að nýta má tæknina til að margfalda áhrifamátt skáldaðs “sannleika”.
Við vitum hvernig hægt er að koma því inn hjá þjóðum að aðrar þjóðir eins og þær leggja sig séu óalandi og óferjandi.
Við vitum að draga má upp mynd af vel þenkjandi mönnum sem illmennum og gera góðmenni úr varmennum.
Við vitum að ekki er allt sem sýnist.
Allt þetta vitum við. En einmitt vegna þess að þetta er á allra vitorði hafa skapast ný tækifæri fyrir valdhafa að hnoða úr. Þau felast í því að láta okkur efast um allt og alla og þá ekki síst um okkur sjálf. Það er vopnið sem farið er að beita án afláts. Smám saman fer vitneskjan um falsfréttina svo að grafa undan lýðræðinu.
Að sögn stækkunarstjóra ESB varð niðurstaðan í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið á Íslandi eins og hún varð vegna þess að áhrifaöfl að vestan og austan hefðu beitt meirihluta þjóðarinnar þrýstingi og falsáróðri.
Aðrir sögðu að Íslendingar hefðu einfaldlega verið plataðir eins og Bretar í Brexit.
Svo voru það vesalings Rúmenarnir sem fylktu sér um tiltekinn frambjóðanda í forsetakosningum í landi sínu en vissu ekki að þeir hefðu kokgleypt rússneskan áróður enda var kallaður saman stjórnlagadómstóll sem umsvifalaust svipti hinn sigursæla frambjóðanda kjörgengi með blessunarorðum frá NATÓ og ESB. Þar sagði enginn neitt annað en að fagna bæri því að fólkinu hefði verið bjargað frá fölskum áróðri og í framhaldinu röngum skoðunum sínum.
Dylgjur um falskar fréttir og lygaáróður geta þannig orðið nýtilegur efniviður til að ráðskast með fólk. Okkur er innrætt að í ótryggum ósannindaheimi séum við hreinlega ófær um að mynda okkur sjálfstæða skoðun. Farsælast sé því að halda sér til hlés og láta þau ein hafa vit fyrir okkur sem allt vita best. En þar með gæfum við lýðræðið upp á bátinn.
Ef til vill fékk meirihluti Breta eftirþanka. Hver veit. Eða meirihluti Íslendinga eða þá minnihlutinn? En þegar allt kemur til alls var þetta niðurstaða lýðræðisins. Og varla ætlum við að taka því þegjandi að það séum aldrei við og niðurstöður okkar sem mark sé á takandi; að allt sem við segjum og gerum hljóti að vera runnið undan rifjum annarra.
Fyrir mitt leyti samþykki ég það ekki að ég geti aldrei verið ég.
Hvað með þig?
--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)
Augljóst er að skipta þyrfti þar út líka.