Fara í efni

Á ÍSLANDSTORGI Í TALLIN

Lokið er vikudvöl í Eistlandi en þangað fór ég sem fulltrúi nefndar sem þekkt er undir skammstöfuninni ECRI en heitir fullu nafni European Commission against Racism and Intolerance. Nefndinni er ætlað í samræmi við heiti sitt að beita sér gegn kynþáttamisrétti og umburðarleysi. Á vegum þessarar nefndar eru gerðir út rannsóknarleiðangrar til allra fjörutíu og sex aðildarríkja Evrópuráðsins með reglulegu millibili og var þetta einn slíkra. Áherslan að þessu sinni var lögð á glæpi sem rekja má til haturs og síðan hvort fordómalaust aðgengi væri að menntun og heilbrigðisþjónustu.

Enginn vafi leikur á því að víða í heiminum færist hatursfull umræða í vöxt með þeim afleiðingum að samfélögin sundrast, færast í átt að gagnstæðum ystu pólum. Þeir sem hata gerast orðljótari og á hinum pólnum er svarrað í sömu mynt og þanng vinda illindi og óvild upp á sig á báða bóga. ECRI leggur áherslu á að gegn slíku verði hamlað eins og nokkur kostur er og þess í stað talað fyrir sátt og umburðarlyndi. Hver og einn þurfi að líta í eigin barm. Þegar þar að kemur munum við gera skýrslu um það sem við teljum okkur hafa orðið vísari í heimsókninni til Eistlands og setja fram tillögur til úrbóta gerist þess þörf. Um endanlega skýrslu og tillögur þarf að ná samstöðu í ECRI nefndinni fullskipaðri áður en hún sendir frá sér svo mikið sem stafkrók.

Á efstu myndinni er rýnt í skýringarplatta í Íslandsgarði í Tallin. Hér er horft úr hótelglugga á tólftu hæð. Fyrir miðju utanríkisráðuneyti Eistlands við Íslndstog númer eitt. Handan við ráðuneytið er Íslandsgarður en lengra má greina kirkjuturna ú gamala bænum.

Ég skynjaði almenna velvild í garð Íslands – Eistlendingar minnast þess að Ísland varð fyrst til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna og er í hávegum höfð för Jóns Baldvins Hannibalssonar, þáverandi utanríkisráðherra Íslands, til þessara landa árið 1991. Til marks um þetta má meðal annars nefna að utanríkisráðuneytið í Tallin er við Íslandstorg númer eitt og skammt undan er Íslandsgarður!

Gamli bærinn í Tallin, höfuðborg Eistlands, er fallegur og gaman að ganga þar um. Það er ekkert einsdæmi að gamlir evrópskir bæir séu skemmtilegri fyrir augað en þeir bæir eða borgarhlutar sem nýrri eru af nálinni. Það á við um Tallin þótt þar sé vissulega að finna margar nýjar glæsibyggingar.
Heitið Tallin mun dregið af samsettu orði, Danski-bær, og minnir það á nýlendubrölt Dana norður eftir Eystrasaltinu lengi vel fyrr á tíð. Þar áttu þeir um skeið í höggi við annað nýlenduveldi, Svíþjóð, sem um tíma teygði valdaklær sínar allt suður til Úkraínu. Áður hafði sambandsríkið Litháen-Pólland lengi vel verið stærsta ríki í Evrópu, náði á 15. öldinni frá Eystrasalti og suður að Svartahafi. Síðar kom til sögunnar Pétur «mikli» Rússakeisari sem einnig vildi ráða og ráðskast með allt og alla að ógleymdum Sovétríkjunum á öldinni sem leið.


Minnismerki í Narva um sigur Karls XII Svíakóngs á her Rússa. Áður höfðu Svíar unnið sigur á Dönum sem ásamt Rússlandi og Póllandi-Litháen höfðu sameinast gegn þeim. Níu árum eftir orustuna um Narva snerist taflið við þegar Rússar unnu sigur á Svíum í Poltava sem er 300 km austur af Kænugarði í Úkraínu. Tólf árum enn síðar, árið 1721 lauk síðan Norræna stríðinu svonefnda og hafði einræði Svía yfir Eystarasaltinu þar með verið hnekkt.

Löngum hafa menn talið sér trú um það að sagan sé á byrjunarreit. Staðreyndin er sú að ríkjaskipan heimsins hefur stöðugt verið að taka breytingum. Þannig er hún nú gerólík því sem hún var fyrir ekki svo ýkja löngu – víða voru núverandi ríki hreinlega ekki enn sjáanleg fyrir hálfri annarri öld.

Fyrir vikið verður tal um landamæri og hve heilög þau séu stundum svolítið ruglingslegt. Landamæri hafa í gegnum aldirnar breyst í samræmi við hernaðarstyrk og hagsmuni aðals og kóngafólks og mægðir þess í millum. Á undanförnum öldum hafa mest mark sett á heiminn ríki sem njóta þess vafasama heiðurs að teljast til nýlenduríkja.

Annað kemur einnig til og það er hvað gerist innan ríkja. Sagan kennir að á víðfeðmum valdstjórnarsvæðum hafi iðulega tíðkast þvingaðir fólksflutningar, beinlínis sniðnir að því deila og drottna. Í þessu augnamiði hafa stórir hópar fólks, jafnvel heilar þjóðir eða þjóðabrot verið rekin sem hjarðir í nýja haga og þeir sem fyrir voru þá stundum þvingaðir til brottflutnings til staða sem þeir alls ekki voru velkomnir á og þannig koll af kolli. Slík nauðung, jafnvel frá löngu liðinni tíð hefur oftar en ekki haft illar afleiðingar langt fram í tímann. Svo er einnig á okkar dögum.

Með nýjum valdahlutföllum, jafnvel nýjum landamærum opnast gömul ör og spurningar vakna sem engan veginn er auðvelt að svara. Þá eru það nýjar kynslóðir sem sitja uppi með erfiða sögulega arfleifð sem ekki einu sinni er til komin af völdum forfeðranna heldur kaldrifjaðra verkfræðinga valdsins sem oftar en ekki voru sjálfir fjarri vettvangi. Hver skal nú eiga rétt til landsins, aðkomumenn sem valdhafar frá fyrri tíð hafa skákað til í yfirveguðu manntafli sínu eða hinir sem fluttir voru á brott nauðugir viljugir? Þarna takast á menningarheimar því að sjálfir hinir aðfluttu og hinir brott reknu eru löngu fallnir frá. Þá er einnig spurt, hver á nú rétt til tungunnar, hvert skal vera tungumál menntunar og samskipta, þeirra sem fluttu tungumál sitt með sér eða hinna sem fyrir höfðu verið?

Einhverjir kunna að segja að svör við spurningum af þessu tagi hljóti að eiga að vera ótengd tímanum; hvort þjóðarbrot sem enga sök eigi á því sem gerðist löngu fyrir daga núlifandi fólks sem þekkir jafnvel ekki til sögunnar, eigi ekki rétt til tungu sinnar óháð tímans tönn og óháð landamærum ríkja?
Ríki koma og fara en varla mannréttindi.
Þetta eru viðkvæmar spurningar víða við austanvert Miðjarðarhafið og mjög svo í gömlu Sovétlýðveldunum, ekki síst Eystrasaltsríkjunum. Svörin eru sjaldnast augljós enda tilfinningar iðulega svo heitar að niðurstöður geta ráðið úrslitum um stríð og frið.

Það er sammerkt með ríkjum að þau vilja tryggja einsleitni innan síns ráðasvæðis – allir verða að vera innan sama upplýsingasvæðisins, sagði forsætisráðherra Eystrasaltasríkis fyrir fáeinum misserum og bætti því við að þetta væri öryggisatriði og minnti þannig á mátt áróðurs þegar kemur að því að ráskast með fólk. Þetta er hins vegar réttlæting þess að neyða fólk til að láta af tungu sinni.

En svona einfalt er málið varla sem áður segir: Tunga og menning eru hluti af sjálfsmyndinni, óaðskiljanlegur hluti tilverunnar og allt krukk þar í gengur nærri mannréttindum þeirra sem í hlut eiga. Sagan geymir alltof mörg dæmi um harðneskju við að útrýma þjóðtungum innan landamæra og nægir að nefna tungu Baska, Katalóníumanna og Kúrda. Og nú er sótt að tungu rússneskumælandi manna í sumum nýlega sjálfstæðum fyrrum Sovétlýðveldum. Það er tilefni þessara vangaveltna minna.

Í heimsókn minni hef ég hitt gott fólk og velviljað þótt innbyrðis syngi það ekki allt í samhæfðum kór. Ekki síst hvað varðar réttinn til menningar og tungu.


Ferðafélagar fyrir framan ráðhúsið í Narva

Í Eistlandsheimsókn fórum við ferðfélagar mínir meðal annars til Narva sem er á landamærunum við Rússland. Á þessu svæði Eistlandsmegin tala nær hundrað prósent íbúanna rússnesku og taka því illa að nú skuli ríkismálið og en þó allra helst tungumál í skólum eitt vera eistneska. Meira um það allt síðar.

Eftir stendur viðkynning við gott fólk sem býr við hrikalega erfiða sögulega arfleifð. Hér var hæl Sovétríkjanna stigið niður og áður voru hér þýskir nasistar á ferð og skildu eftir sig illar minningar.

Spurningin er hvernig eistnesku þjóðinni tekst að vinna sig fram á veginn til farsældar. Þar reynir á velvildarstuðning umheimsins – vígbúnaðar-glamur sem nú gerist sífellt háværara og fyrirferðarmeira um heiminn gervallan vísar hins vegar veginn til frekari mannfórna – til þeirrar helstefnu sem heimurinn ætti að vera búinn að fá nóg af.

MYND
Rússland í baksýn

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna:
https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course:
https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)