Á FRÉTTAMANNAFUNDI Í ROJAVA
Í gær var efnt til fréttamannafundar í Amuda í Rojava þar sem greint var frá rannsóknarferð sérfræðinga í alþjóðamannréttindalögum og réttarmeinafræði til Rojava en mér var boðið að taka þátt í þessari för og hafði reyndar orð fyrir henni út á við ásamt Rengin Ergul, lögmanni sem starfar í Þýskalandi meðal annars í samstarfi við mannréttindasamtökin Maf-Dad.
Sendinefndin hélt sig til hlés á fréttamannafundum enda leggja sérfræðingarnir mikla áherslu á óhlutdrægni í rannsóknum sínum. Unnið verður úr gögnum sem nú liggja fyrir eftir viðtöl við fulltrúa dómskerfisins, lækna, sjálfstæðra kvenréttindasamtaka, fulltrúa fólks sem hrakið hefur verið frá heimabyggðum ( að minnsta kosti hundrað þúsund manns eru á vergangi af þeim sökum í Rojava) og fólk með ólíkan bakgrunn sem hefur sjálft orðið fyrir ofbeldi eða orðið vitni að ofbeldisvekum. Sérfræðingarnir munu nú vinna úr gögnum sínum, greina þar mynstur og rekja sök eftir því sem kostur er. Þegar skýrsla liggur fyrir verður hún kynnt mannréttindastofnunum og hefjast fyrstu fundir með Mannréttindanefnd SÞ í Genf í komandi viku. Síðan er spurningin hvort málin endi fyrir dómstólum. Eitt er víst að til þessi eru ríkar ástæður!
Engar yfirlýsingar verða gefnar um viðræður, vitnaleiðslur og réttarmeinafræðilegar niðurstöður rannsókna fyrr en endanleg skýrsla liggur fyrir að nokkrum vikum liðnum.
Þessu komum við Rengin Ergul á framfæri á fréttamannafundinum í Amuda og leiðréttist þar með það sem áður hafði verið ranglega skilið úr mínum munni að sendinefndin samanstæði af „aktífistum“. Vissulega eru þessir sérfræðingar „aktíft fólk“ í þágu mannréttinda en hér fylgdist ég hins vegar með störfum fólks sem fyrst og síðast var að leita sannleikans á óhlutdrægan hátt. ANF | Human rights activists from Europe travel to Rojava
Svo mikið er þó hægt að segja á þessari stundu um niðurstöðu þeirra að hún var afdráttarlaus t á þá lund að hrikaleg mannréttindabrot hafi augljóslega verið framin og var stuðst við enska hugtakið „alarming“ sem er í ætt við ákallið sem vorum að svara frá Rojava til sofandi heimsbyggðar að timi væri komin á að vakna. Neyðarbjöllur ættu að hringja um heiminn allan þegar Rojava – tilraunastofu um mannréttindi, jafnrétti kynja og friðsamlega sambúð ólíkra hópa – væri ógnað. Þá væri gildum sem þessu tengdust ógnað á heimsvísu. Sú setning klipptist aftan af yfirlýsingu minni á fréttamannafundinum í Amuda en hluta hennar má sjá hér á þessari slóð.
https://hawarnews.com/en/maf-dat-delegation-serious-war-crimes-committed-in-rojava
Á fréttamannafundinum gerði ég einnig grein fyrir viðræðum rannsóknarhópsins meðan á dvölinni stóð en Rengin Ergul bætti síðun um betur með ítarlegri yfirlýsingu.
A NEWS CONFERENCE IN ROJAVA
Yesterday, a press conference was held in Amuda in Rojava where a fact finding mission of experts in international human rights law and forensic medicine was rounding up after a week of intensive work. I had been invited to take part in this mission and was given the task, alongside Rengin Ergul, a lawyer working in Germany, amongst other things in cooperation with the human rights organization Maf-Dad, to speak publicly on its behalf.
The delegation kept a low profile at press conferences, as the experts place great emphasis on impartiality in their investigations. Work will now be carried out on the data that has been gathered following interviews with representatives of administrative organizations, the judicial system, doctors, independent women’s rights structures, representatives of displaced people (at least a hundred thousand people have been driven with violence from their home regions in Rojava), and individuals with a variety of background who have themselves suffered violence or witnessed violence. The experts will now process their data, analyze patterns within them, and trace responsibility as far as possible. When their report is ready, it will be presented to human rights institutions, and the first meetings with the UN Human Rights Commission in Geneva will be held next week. The question then is whether the findings of the epxperts will end up in an international court of justice. There seem to be compelling reasons for this to be done!
No statements will be made about discussions, witness testimonies, or forensic findings until the final report is completed in a few weeks’ time.
Rengin Ergul and I made this clear at the press conference in Amuda, thereby correcting what had previously been mistakenly understood from my words—that the delegation consisted of “activists.” Certainly, these experts are “active people” in the service of human rights, but in Rojava I was observing the work of individuals who were first and foremost seeking the truth in an impartial and highly professional manner.
https://www.ogmundur.is/is/greinar/a-frettamannafundi-i-rojava
However, it can be said at this stage about their conclusion that it was unequivocally to the effect that horrific human rights violations have clearly been committed, and the English term “alarming” was used, akin to the call we were responding to from Rojava, namely to a sleeping world, that the time had come to wake up. Alarm bells should be ringing around the world when Rojava—a laboratory for human rights, gender equality, and peaceful coexistence amongs people is under threat. Then the values connected to this are threatened on a global scale.
https://hawarnews.com/en/maf-dat-delegation-serious-war-crimes-committed-in-rojava
----------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)