Fara í efni

Á AFREKASKRÁ RÍKISSTJÓRNARINNAR

 

Þessi mynd mun aldrei komast á heimsminjaskrá en á afrekaskrá ríkisstjórnarinnar á hún heima.

Þetta er mynd af ólöglegri verslun með áfengi sem fær þrifist í skjóli ríkisvalds sem lætur lögleysuna viðgangast óáreitta.

Augljóst er að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins vilja gera netverslun löglega og vilja jafnframt opna á rýmri reglur um áfengissölu, helst ganga endanlega frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Framsókn og VG eru þessu andvíg en hafa aldrei þorað að setja hnefann í borðið til að trufla ekki teboðið sem staðið hefur í sjö ár í Stjórnarráði Íslands.

En vegna þess að ekkert gerist af hálfu stjórnvalda og á meðan þeir aðilar sem eiga að hafa eftirlit með því að farið sé að lögum í landinu halda að sér höndum, er allt á fullri ferð hjá þeim sem nýta sér tækifærið sem með þessu býðst. Þeir stunda sína ólöglegu netverslun, opna “netsölubúðir” og eru stórfyrirtækin Heimkaup og Costco stórtækust. Aðrir eru smærri í sniðum en er engu að síður að verða vel ágengt við að maka krókinn.

Þegar Costco kom til landsins byrjaði samsteypan á því að senda Alþingi bréf um hvernig lögum skyldi breytt um áfengissölu og síðan einnig um innflutning á hráu kjöti. Ýmsum brá við frekjuna og yfirganginn en mundu svo að þessu er Costco vant heima fyrir í Bandaríkjunum. Þar ráða stórfyrirtækin, stjórnvöldin hlýða þeim.

Og nú er þetta orðið eins hér á landi. Þegar búið að opna fyrir hráa kjötið og komið að brennivíninu. Og þar er allt komið í gang. Allt eins og heima! Fjárgróðaöflin ráða þegar stjórnvöldin hætta að standa almannavaktina.

Hvað segir forsvarsfólk ríkisstjórnarinnar um þennan vitnisburð? Verður þessi mynd hér að ofan sett í afrekaskrá ríkisstjórnarinnar þegar hún biður almenning um að endurnýja umboð sitt í þriðja sinn?

---------------------------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.