UPPLÝSANDI FUNDUR
Hlín Leifsdóttir fundarstjóri fyrir miðju og við Eiríkur S. Svavarsson henni til sitt hvorrar handar
Það kemur enginn að tómum kofanum þar sem Eiríkur Svavarsson hæstaréttarlögmaður er annars vegar. Á hádegisfundi hjá samtökunum Til vinstri við ESB á Horninu í Hafnarstræti í Reykjavík í dag fjallaði hann um bókun 35 með EES samningnum frá 1994 – fullveldisbókunina eins og hún var nefnd á fundinum í dag því henni hafði verið ætlað að vernda stjórnarskrána. Færði Eiríkur sannfærandi rök fyrir því að lögbinding hennar myndi ekki ganga upp gagnvart stjórnarskránni. Þess vegna hefði bókunin einmitt verið láta vera bókun til lögskýringar á sínum tíma en ekki lagaregla.

Eiríkur S. Svavarsson stendur ekki til vinstri við ESB og ekki endilega til vinstri við EES en á hinn bóginn er hann gallharður varðstöðumaður um stjórnarskrá Íslands. Við Hlín Leifsdóttir erum hins vegar bæði félagar í samtökunum og Hlín í stjórn.
Allvel var mætt á fundinn sem þó hafði hafist þegar veðurguðirnir létu hvað verstum látum í dag. Galvaskur hópur hafði ekki látið það á sig fá.

Breytti þessi fundur einhverju? Já, hann gerði það, minnti á það að samtökin Til vinstri við ESB telja hlutverki sínu ekki lokið. Þá held ég að óhætt sé að segja að fundarmenn sem komu úr ýmsum áttum hafi verið sammála um hvílíkt feigðarflan það er af hálfu ríkisstjórnarinnar að hefja að nýju vegferð sem augljóslega mun leiða til sundrungar með þjóðinni.
Ég ræddi sögulega umgjörð EES samningsins en vísaði að öðru leyti í greinagerð mína um umrætt þingmál sem ég hafði sent utanríkismálanefnd Alþingis og má nálgast hér: https://www.ogmundur.is/is/greinar/umsogn-um-bokun-35

--------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)