Fara í efni

UMSÖGN UM BÓKUN 35

Í dag, föstudaginn 23. október, rennur út frstur til þess að senda inn umsögn til Alþingis um bókun 35, sem svo er nefnd. Ég lét ekki undir höfuð leggjast að senda inn umsögn og birti ég hana hér að neðan:

Umsögn um 134. mál – Evrópska efnahagssvæiðið (bókun 35)

Hinn 9. október síðastliðinn barst mér boð frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis um að veita umsögn um mál utanríkismálanefndar Alþingis, 134. mál- Evrópska efnahagssvæðið (bókun 35)

Nánast samhljóða þingmál hefur verið flutt tvívegis og sendi ég inn umsögn í báðum tilvikum.

Þingmálið nú er með sama orðalagi og það var er það var lagt fram á síðasta ári og hafði þá tekið lítilsháttar breytingum frá frumvarpi sem lagt var fram árið 2023.

Þá var það þannig orðað:

“Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum.”

Frumvarpið frá 2025 var hins vegar nákvæmlega eins orðað og þessi nýja útgáfa nú. Bætt hafði verið sex orðum við lagagreinina frá 2023 og er nú svohljóðandi:

„Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.”

Í greinargerð kemur fram að höfundar telji að með þessu móti verði frumvarpið skýrara. Vandséð er að svo sé hvað varðar megininntak frumvarpsins sem hér mun verða reifað.

Að uppistöðu til byggi ég umsögn mína á fyrri umsögnum en þó með nokkrum breytingum og viðbótarorðum.

Erum að öðlast betri skilning á Evrópusambandinu

Í aðdraganda þjóðartkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið fór fram meiri og dýpri umræða en áður hafði almennt verið um kosti og galla aðildar að ESB svo og um þá þróun sem orðið hefur á sambandinu og einnig EES samningnum frá því að sá samningur tók gildi í byrjun árs 1994. Allt hlýtur þetta að hafa áhrif á hve nánum böndum við viljum tengjast Evrópurétti og úrskurðarvaldi á hans forsendum.

Öllum má nú ljóst vera að Evrópusambandið hefur tekið eðlisbreytingu á þeim undangengnu áratugum sem liðnir eru frá því að EES samningurinn var gerður, valdsvið þess orðið umfangsmeira og teygir það sig sífellt lengra inn í samfélög aðildarríkjanna. Jafnhliða þessari þróun hefur dómstóll Evrópusambandsins öðlast víðtækara valdsvið, en honum er beinlínis gert að dæma í þágu Evrópusamruna. Þá er nánast óumdeilt að dómar hans byggi að jafnaði á grundvelli markaðshyggju; að réttlætið þar á bæ byggi á óheftum markaðsviðskiptum.

Þetta þýðir að lýðræðið víkur fyrir dómsvaldinu og dómsvaldið fyrir peningavaldi. Þetta hygg ég vera staðreynd – uggvænlega staðreynd sem vert er að hafa í huga í allri þessari umræðu.

Samsvarandi framvindu gætir einnig í þróun hins Evrópska efnahagssvæðis og þar af leiðandi túlkun á EES samningnum og er það vissulega rétt sem segir í greinagerð með frumvarpinu að hann móti „allt samfélagið.“ Í samræmi við það hefði mátt búast við því í markmiðslýsingu frumvarpsins að fastar væri að orði kveðið en raun ber vitni um lýðræðislegan rétt þjóðarinnar til aðkomu að þessari mótun eigin samfélags í þeim tilvikum þar sem vafi leikur á því hvar liggi mörk innlends dómsvalds og Evrópuréttar. Bókun 35 er tilkomin vegna þess að skilyrðislaus tenging við Evrópurétt hefði ekki staðist stjórnarskrá Íslands auk þess sem samningamenn Íslands vildu áskilja innlendu dómsvaldi rétt til að túlka hvar lægju mörk ísensks og erlends dómsvalds þar sem um álitamál á gráu svæði væri að ræða. Í greinargerð með þessu frumvarpi liggur áhersla aðstandenda þess hins vegar utanlands; að með þessari lagabreytingu verði tryggt að „ekki leiki lengur vafi á því að þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands sem í EES samningnum felast verði virtar.“

Auðvitað skal undir það tekið að mikilvægt er að staðið verði við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands en jafnframt og ekki síður að staðinn verði vörður um stjórnarskrá Íslands og að ekki verði hallað á lýðræðið þegar skorið er úr um álitamál hvað varðar markaskil Evrópuréttar og íslensks réttar.

Andvaralaust Alþingi

Í greinargerð frumvarpsins er að sönnu lögð áhersla á rétt einstaklinga og fyrirtækja að sækja „rétt“ sinn gagnvart íslenska ríkinu. Þar er yfirleitt um að ræða réttindi á grundvelli óheftra markaðsviðskipta eins og síðar er vikið að í þessari umsögn en þó eru á því undantekningar og ber þar hátt mál sem móðir höfðaði á hendur íslenska ríkinu fyrir að þrengja rétt sinn til greiðslna úr fæðingarorlofsjóði. Fylgismenn bókunar 35 á þingi segja þetta dæmigert réttlætismál þar sem einstaklingurinn stæði sterkar að vígi með lagaákvæði í stað núverandi túlkunarreglu á borð við bókun 35. Ég skil málið hins vegar svo að ágreiningur sé ekki á milli dómsvalds á Íslandi og í Evrópusambandinu heldur snúi málið að andvaralausu íslensku löggjafar- og framkvæmdavaldi sem íslenskur Hæstiréttur hefur nú dæmt til að greiða skaðabætur fyrir að hafa ekki breytt lögum eins og heyra má að vilji allra standi til!

En ekki eru öll mál eins auðleyst og þetta og skal nú tekið dæmi sem eining var vikið að í fyrri umsögnum enda þykir mér það snerta kjarna máls.

Hver skal túlka stjórnarskrá Íslands?

Í ráðherratíð minni í innaríkisráðuneytinu vildi ég láta reyna á rétt okkar til þess að hamla gegn landakaupum erlendra manna á íslensku landi. Horfði ég þar til vaxandi áhuga auðmanna á landakaupum. Vildi ég að eignarhald á landi yrði ekki flutt út fyrir landsteinana og að það skyldi gilda um EES þegna sem aðra. Leitaði ég álits lagaprófessora við Háskóla Íslands og háskólann í Árósum. Þeirra niðurstaða var sú að slíkar takmarkanir væru heimilar þrátt fyrir EES samninginn að því gefnu að fjárfesting í landi væri ekki beintengd fjárfestingum sem augljóslega heyrðu undir ákvæði fjórfrelsis EES. Þá horfði ég einnig til ákvæðis íslensku stjórnarskrárinnar sem kveður á um að heimilt sé með lögum að takmarka erlent eignarhald á landi. Í 72. grein stjórnarskrárinnar segir: ”Með lögum má takmarka rétt erlendra aðila til að eiga fasteignaréttindi eða hlut í atvinnufyrirtæki hér á landi”.
Þá verður varla horft fram hjá 2. grein stjórnarskrárinnar: „Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið. Forseti og önnur stjórnarvöld samkvæmt stjórnarskrá þessari og öðrum landslögum fara með framkvæmdarvaldið. Dómendur fara með dómsvaldið.”
Hvað landakaupin áhrærir hefði verið fróðlegt að sjá hvert hald hefði verið í íslensku stjórnarskránni gagnvart yfirþjóðlegu dómsvaldi sem krefðist þess að geta gert út um öll álitamál er hana snerti. Varla hefði íslenskur Hæstiréttur sætt sig við slíkt. Og varla hefði Alþingi sætt sig við slíkt, eða hvað?
Mergurinn málsins er þessi: Í stjórnarskrá Íslands eru greinar sem augljóslega geta stangast á við EES samninginn og túlkun hans. Nánast eðli máls samkvæmt geta slík tilvik komið upp.
Þarna getur og myndast grátt svæði vegna þeirra öru breytinga sem þróun EES samningsins leiðir af sér og má þar nefna afleiddar breytingar af skipan raforkumála. Þarna liggur m.a. skýringin á því að bókun 35 er bókun en ekki lagaákvæði.
Íslenskir samningamenn gerðu sér grein fyrir því að yrði undirgengist valdsvið ESB réttar án fyrirvara myndi það ekki standast stjórnarskrá Íslands og túlkun á henni skyldi ekki tekin frá íslenskum dómstólum.


Fræðimenn greinir á

Ástæða er til þess að taka fram að fullyrðingar í greinargerð frumvarpsins um samstöðu fræðimanna um ágæti þessarar lagabreytingar og nauðsyn hennar eru ósannar og nægir að vísa í fjölda gagnrýninna greina fræðimanna.

Í greinargerð frumvarpsins er ekki valin sú leið að birta rök og mótrök. Greinargerðin svo og álitsgerð Þorgeirs Örlygssonar, fyrrverandi lagaprófessors með meiru, sem fylgir með frumvarpinu kemur mér þannig fyrir sjónir að málflutningurinn gangi fyrst og fremst út að sannfæra löggjafann um að í engu sé skertur réttur Alþingis til lagasetninga né gangi frumvarpið í berhögg við stjórnarskrá Íslands en Þorgeir leitast við að svara því í álitsgerð sinni hvort “svigrúm löggjafans til lagasetningar verði í raun takmarkað ef frumvarpið verður að lögum.”
Hann segir svo ekki vera enda geti fyrri löggjafar ekki bundið hendur þeirra sem á eftir koma eins og kveðið er á um í stjórnarskrá Íslands. Þetta er sannfærandi að því leyti að lagalegur réttur verður fyrir hendi til þess að segja sig frá EES samningnum og að löggjafanum sé heimilt að setja öll þau lög sem hann vilji en sé það ekki samkvæmt formúlum EES fái hann hins vegar lögsóknir og sektir í bakið!

Með þessu frumvarpi er leitast við að innleiða í íslenska löggjöf skuldbindingar Íslands sem tengjast EES (bókun 35) á afdráttarlausari hátt en gert var árið 1993. Þá var, sem eðlilegt hlaut að teljast, höfð tilvísun til þess sem undir ESB/EES-rétt heyrði, það er að skýra skuli “lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES samninginn og þær reglur sem á honum byggja.” Í íslensku þýðingunni á bókun 35 segir að “ef þörf krefur” skuldbindi EFTA-ríkin sig til að tryggja með lögum að EES reglur hafi forgang ef árekstur verði á milli þeirra og almennra íslenskra laga.

Orðalagsmunurinn kann að skipta máli og gefa vísbendingu um skilning íslensku samningamannanna á bókun 35. En með lagagreininni sem nú skal bætt inn í lögin telur ESB/EES dómsvaldið hins vegar að allur vafi sé tekinn af um að túlkunarvaldið heyri því til.

Siðferði háð stærð þjóðar?

Í greinargerð þessa frumvarps er ýmsu gerð góð skil en sumt orkar aftur tvímælis í röksemdafærslu sem ætluð er til að sannfæra okkur um nauðsyn þessarar lagabreytingar svo hnökrar séu ekki á því að EES samningnum sé framfylgt til hins ítrasta. Dæmi um þetta er eftirfarandi:
“Sem lítið og opið samfélag hefur Ísland ríka hagsmuni af því að staðið sé við þjóðréttarlegar skuldbindingar.”
Þetta er nokkuð sérkennileg athugasemd eða hvað skyldi vera frábrugðið fyrir smáa þjóð sem ekki eigi við um fjölmennari þjóðir þegar um það er að ræða að þjóðréttarlegar skuldbindingar séu virtar? Ætla hefði mátt að málið snerist um lög, reglur og prinsipp en varla um það hvort borgi sig að standa við skuldbindingar sínar. Hitt er svo annað mál að spyrja má hvort hin smáa þjóð þurfi á vernd að halda gagnvart fjölþjóðarisum sem gína yfir innviðum samfélaganna og kemur þá upp í hugann dómur EFTA dómstólsins sem ógilti úrskurð Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að ríkisaðstoð vegna sæstrengs hefði verið í samræmi við EES samninginn. Að meina samfélagi um að vilja sjálft halda utan um grundvallar innviði sína eins og sjálfan naflastrenginn til landsins vekur spurningar um það vald og eftir atvikum valdaafsal sem það samfélag telst hafa undirgengist.

Til að sýnast

Ég fæ ekki annað séð en að í þessari lagagrein og skýringum með henni séu ýmsar mótsagnir í framsetningunni, í besta falli hálfkveðnar vísur. Staldra ég þá fyrst við lykilatriði þessa frumvarps, nefnilega að hafi skuldbindingar samkvæmt EES samningnum verið „réttilega“ inn settar skal EES-réttur hafa forgang gagnvart íslenskum lögum “nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. “
Hér hygg ég að flestum lesendum þyki að samkvæmt orðanna hljóðan geti íslenskur löggjafi samþykkt skuldbindingar EES en engu að síður jafnframt takmarkað réttaráhrif þessara skuldbindinga með því að kveða á um tilteknar takmarkanir í íslenskum lögum.
Mótsögnin væri þá fólgin í því að gefa í skyn að íslenskur réttur skuli vera ráðandi ef ákveðið hafi verið með lögum að svo eigi að vera þegar í reynd er síðan sýnt fram á það í greinargerð að þegar á slíkt reyndi væri um það að ræða að ríkið yrði skaðabótaskylt vegna samningsbrota!

Nauðsyn á upplýsingum og umræðu

Gagnlegt væri að fá yfirlit yfir þau lög íslensk sem hafi beinlínis mælt fyrir um takmarkanir á skuldbindingum samkvæmt EES samningnum. Dæmin þekkjast vissulega eins og vikið verður að, en ekki hafa þau skilað tilætluðum árangri.
Þá hafa verið gefnar pólitískar yfirlýsingar um skilyrta upptöku skuldbindinga gagnvart EES samningnum, og má þar nefna innleiðingu þjónustutilskipunarinnar 2009, en þar var sérstaklega settur fyrirvari við einkavæðingu innan heilbrigðiskerfisins, og svo vegna innleiðingar orkustefnu ESB svo nýlegra dæmi sé tekið. Reyndin er hins vegar sú að fyrirvarar af þessu tagi eru haldlausir og jafnvel þegar íslensk lög hafa í undantekningartilvikum verið sett þvert á EES skuldbindingar, beinlínis til að takmarka þær, hefur þeim lögum verið hnekkt fyrir EFTA dómstólnum, sbr. innflutning á hráu kjöti. Þar var ríkið dæmt í sekt. Æskilegt væri að þingmenn kölluðu eftir nánari skýringum á frumvarpinu hvað þetta varðar og tækju um það málefnalega umræðu sem þeir skiluðu síðan frá sér út í þjóðfélagið svo ekkert orkaði tvímælis gagnvart þingi og þjóð.

Þetta er nokkuð sem flutningsmenn frumvarpsins verða með öðrum orðum að svara, hvað átt sé við í stjórnarfrumvarpinu með því að fullyrða að Alþingi geti mælt fyrir um aðrar lagareglur en þær sem felast í “réttilega innleiddri skuldbindingu samkvæmt EES samningnum”. Það væri orðhengilsháttur að segja okkur hið augljósa, nefnilega hvað hægt er að leggja til að forminu til, ef ekki væri raunveruleg innistæða þar á bak við, með öðrum orðum að fyrirvarinn hafi efnislegt inntak en sé ekki aðeins hafður til sýnis svo menn megi sannfærast um að ekki sé um afsal á lagalegu forræði að ræða.

Óheiðarlegur málflutningur

Önnur leið sem farin er í greinargerðinni til að sannfæra okkur um að ekki sé um neins konar afsal að ræða, er að benda á að þótt lagagreinin sem hér er til umræðu yrði samþykkt þá megi afnema hana með lögum. Íslenskt löggjafarvald sé þannig á sínum stað! Mikið rétt, við getum líka sagt okkur frá EES sem áður segir.
Í mínum huga er þetta ósvífinn og óheiðarlegur málflutningur.

Annað sem ég tel vera misvísandi og afvegaleiðandi er þegar sýnt er fram á að til séu ýmis fordæmi þess að íslensk lög séu látin víkja fyrir fjölþjóðlegum skuldbindingum okkar, talað er um fjölþjóðlega samninga um loftferðir, reikningsskilareglur, dýralyf og fleira. Þetta er þá væntanlega til samanburðar á skuldbindingum sem Ísland gaf við samningaborð árið 1993 án þess að menn sæju þá fyrir að þrjátíu árum síðar ættum við fullt í fangi með að verja yfirráð yfir orkuauðlindum Íslands og nánast öllum innviðum landsins. Staðreyndin er sú að þegar EES samningurinn var gerður var þetta engan veginn fyrirséð og leyfi ég mér að efast um að gengið hefði verið að samningum ef þetta hefði verið vitað. Þannig að mjög misvísandi er að bera samninga um mjög afmörkuð efni saman við samning eins og EES samningurinn hefur þróast þar sem nánast öll samfélagsgerðin er undir. Með öðrum orðum, breytingar á EES samningnum hafi orðið það miklar og snúi að slíkum grundvallaratriðum að leitt hafi af sér eðlisbreytingu á þessum samningi. Grundvallarbreytingar á EES samningnum og því sem hann leiðir af sér kalla í mínum huga tvímælalaust á umræðu um sjálfan grundvöll aðildar Íslands að EES.

Markaðsvæðingin mærð

Athygli vekur að höfundar og forsvarsmenn frumvarpsins taka skýra afstöðu hvað varðar þann ágreining sem staðið hefur um EES samninginn frá upphafi en ágerst hefur hin síðari ár. Skal nú vikið að þeim ágreiningi.

Annars vegar hefur verið það sjónarmið uppi að EES samningurinn hafi verið til góðs vegna þess að hann hafi leitt til ýmissa umbóta í réttarkefinu sem gagnast hafi einstaklingum og fyrirtækjum svo og afnáms tolla en ekki síður vegna þess að samningurinn hafi stuðlað að markaðsvæðingu samfélagsins. Um þann þátt hefur helst verið deilt.
Margir líta svo á að þróun í átt til markaðsvæðingar vegna ákvæða samningsins hafi grafið undan möguleikum til þess að fara aðrar leiðir en markaðslögmálin bjóða og er þá ekki meginmálið hvor leiðin sé betri, hin markaðsvædda eða hin samfélagslega, heldur hitt hver skuli ráða. Eftir miðjan tíunda áratuginn varð smám saman sú stefnubreyting hjá Evrópusambandinu að færa sífellt fleiri og stærri geira samfélagsins undir hinn samræmda markað og þar með þá Evrópulöggjöf sem gildir um hann. Í greinargerð frumvarpsins er réttilega vikið að þessu og sagt að EES hafi þróast og hafi upphaflegi EES samningurinn þar með tekið breytingum.

Hvað samningamenn Íslands vildu

Einnig er gerð grein fyrir því að samningamenn Íslands hafi streist gegn því að EES réttur yrði sjálfkrafa innleiddur hér á landi heldur þyrfti að samþykkja hverja þá breytingu sem ESB gerði á sínu laga- og regluverki sem snýr að “fjórfrelsinu”. Í þessu kristallaðist umræðan um fullveldi og fullveldisafsal. Annað sem samningamenn Íslands vildu tryggja er að í þeim tilvikum þar sem tekist væri á um lagatúlkun á sviði sem vafi léki á um hvort heyrði undir EES, þá yrði íslensku dómsvaldi ekki vikið til hliðar. Greinargerðarhöfundar segja hins vegar að ESB rétturinn hafi verið að styrkjast með dómum í tímans rás en nota bene, þar er um dómsvald ESB að ræða. Það hefur verið að styrkja eigið vald. Þarna er enn ein hálfkveðna vísan.

Gegn samfélagslegum lausnum

Hér á landi sem annars staðar varð áherslan í EES á frjálsan einsleitan og hindrunarlausan markað til þess að fjárfestar í atvinnulífi gátu nýtt sér samninginn, og þær breytingar sem á honum voru gerðar, til þess að brjóta niður samfélagsþjónustu á þeim sviðum sem nú skyldu heyra undir markaðslögmálin. Minnist ég þess þegar ég reyndi sem þáverandi innanríkisráðherra að styrkja almenningssamgöngur á Suðurnesjum með því að auðvelda sveitarstjórnum að samþætta samgöngur til og frá Leifsstöð rekstri þeirra á samgöngukerfi Suðurnesja en það hefði stórlega eflt almannasamgöngur á því svæði. Hlaut þetta mjög eindreginn stuðning Markaðsstofu Suðurnesja og annarra sem báru almannahag fyrir brjósti.
Þessar tillögur voru hins vegar kærðar til Brussel sem komst að þeirri niðurstöðu að áformin myndu grafa undan samkeppni og mismuna samkeppnisaðilum. Allir vita hvert framhaldið varð með nánast einokandi aðstöðu sterkasta aðilans. Strætisvagnaferðir eru vissulega leyfðar en þá sem hornreka því einokun eða í besta falli fákeppni er þarna við lýði. Áform mín höfðu verið að tryggja að sú fyrirsjáanlega einokum þjónaði samfélaginu sem best.

Sömu sögu er að segja um aðdraganda þess að komið var á strandsiglingum að nýju að frumkvæði innanríkisráðuneytisins svo ég nefni annað dæmi sem ég þekki vel af eigin raun. Þetta tókst þrátt fyrir tafir af völdum umsagnaraðila í Brussel og hótunum um kærur þangað af hálfu þeirra aðila sem óttuðust að þeir kynnu að missa spón úr eigin aski ef ríkissjóður kæmi að málum. Þetta eru dæmi um átök á milli hagsmuna samfélags og fjármagns. Einhverjir kunna að segja að þegar upp sé staðið tryggi markaðurinn hagsmuni samfélagsins þannig að þetta tvennt sé ekki aðskilið heldur samofið. Væri sú raunin þá breytir það ekki því að samfélagið ætti að ráða með lýðræðislegum hætti hvernig það kýs að skipuleggja sig.

Frumvarpshöfundar leyna því ekki hvoru megin þeirra hjarta slær. Sú réttarbót sem þeir segja EES samninginn hafa veitt er, frá þeirra sjónarhóli horft, fyrst og fremst í þágu þeirra sem sækja á ríkið en sem kunnugt er hafa það að uppistöðu til verið fjárfestar og atvinnurekendur. Þannig segir um það lagaákvæði sem nú stendur til að lögfesta að í því sé fólgin mikil réttarbót fyrir einstaklinga og lögaðila á sviðum þar sem ESB-reglur hafa verið teknar upp í EES-samninginn: “Þau réttindi geta einstaklingar sótt sjálfir gegn ríkinu með skýrari hætti en mögulegt er á grundvelli annarra alþjóðasamninga.”

En allt þurfi að vera sem klappað í stein. Svo sé hins vegar ekki: “Þetta veldur því enn fremur að einstaklingar og lögaðilar hafa ekki í öllum tilvikum getað byggt á og náð fram þeim réttindum sem samningurinn áskilur þeim.”

Haft í hótunum

Íslenskir hagsmunaaðilar sem hvað ákafast hafa hamast gegn almannahag, augljóslega oftar en ekki til þess að geta sjálfir komist nær kjötkötlunum – og þá iðulega með því að komast yfir starfsemi og rekstur sem samfélagið hefur byggt upp - hafa hvatt til þess að íslensk stjórnvöld verði með góðu eða illu látin samþykkja þá lagabreytingu sem nú liggur fyrir. Því kalli hefur verið svarað í Brussel eins og fram kemur í greinargerð frumvarpsins. Þar segir:

“ESA hefur kynnt að fyrir liggi að verði ekki bætt úr innleiðingu á bókun 35 muni stofnunin taka næsta skref og höfða mál fyrir EFTA-dómstólnum með kröfu um staðfestingu dómstólsins á því að Ísland hafi brotið gegn skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum.”

Og hvernig skal brugðist við þessari hótun? Það skal gert með því að horfa framhjá hótuninni en verða þó við henni: “Með frumvarpinu er frumkvæði og forræði stjórnvalda á málinu tryggt.”

Með öðrum orðum, íslensk stjórnvöld þurfa að bjarga andlitinu í Brussel og láta líta svo út að þetta hafi alltaf verið ætlunin. Til að sanngirni sé gætt skal þess þó getið að vinnuhópar á vegum ríkisstjórnarinnar höfðu áður komist að svipaðri niðurstöðu.

Nú er það skýrt tekið fram í greinargerð að Evrópuréttur sem aðildarríki Evrópusambandsins eða EES innleiða er yfirþjóðlegur réttur. Þess vegna skiptir öllu máli að hafa svigrúm til að undanskilja íslenskt samfélag því laga- og regluverki sem ætla má að skaði íslenskt samfélag.

Sagan skiptir máli og til þess að menn njóti sannmælis í sögunni ber að halda því til haga að samningamenn Íslands árin 1992 og 1993 sem sömdu um EES lögðu áherslu á tvennt, annars vegar að sérstaka innleiðingu þyrfti svo ESB réttur yrði virkur hér á landi en að það gerðist ekki sjálfkrafa eins og í aðildarríkjum ESB. Hitt atriðið var að sjálfsögðu grundvallaratriði sem ekki má gleymast: Samningamenn Íslands vildu að samningurinn fengi risið undir nafni sem slíkur, sem samningur! Það hefur hins vegar aldrei gengið eftir. Vissulega var samningurinn um EES samningur þegar hann var gerður en þrátt fyrir ýmsar grundvallarbreytingar á honum hefur aldrei verið um neitt að semja. Það reyndist allt óskhyggja og tálsýn.

Látum ekki berast stjórnlaust með straumnum

Í ljósi þessa tel ég að Íslendingar þurfi að skoða framtíðina varðandi EES og þá hvort þeir vilji áfram berast stjórnlaust með straumnum. Og vel að merkja, sá straumur gerist stöðugt stríðari. Sú skoðun að Íslendingar geti haft meiri áhrif innan ESB en utan er enn ein blekkingin og þarf ekki annað en að skoða ferli ákvarðana í ESB til dæmis varðandi aðkomu ríkja að félagslega skuldbindandi alþjóðlegum viðskitpasamningum; samningum sem hafa stögugt meira vægi í skipulagi samfélaganna. Slíkir samningar reynast í sífellt ríkari mæli hvíla á forsendum alþjóðlegs auðvalds.

Þrátt fyrir þrönga stöðu Íslands innan EES rammans hefur hann að geyma ákvæði sem gera kleift að undanþiggja Ísland tilteknum lögum og reglugerðum. Þar kemur til góða sú áhersla af hálfu samningamanna Íslands að samþykkja ekki sjálfkrafa upptöku. Þetta hefðum við getað og eigum enn að láta reyna á varðandi orkumálin, innflutning á matvælum og fleira. Eftir að við höfum hins vegar undirgengist hið yfirþjóðlega vald duga íslensk lög skammt þrátt fyrir yfirlýsingar þar að lútandi og kemur þá enn upp hvað átt sé við með orðalaginu í fyrirliggjandi lagafrumvarpi að setja megi lög sem aftengi innleiðingu á EES rétti.


Pólitísk yfirlýsing

Eðlilegt er að spurt sé hvaða máli yfirleitt skipti hvort þetta ákvæði - endurskoðað orðalag á lögfestingu bókunar 35 - sé samþykkt. Ég er þeirrar skoðunar að samþykkt lagafrumvarpsins væri pólitísk yfirlýsing; stuðningur við þróun EES samningsins inn í samfélagslegar lendur. Ekki verður um það deilt að frá því EES samningurinn var gerður hefur áherslan verið á aukið vægi markaðslausna og að félagslegur rekstur á vegum samfélagsins hefur verið víkjandi. Það er sú þróun sem við höfum haft fyrir augunum og er enn fyrirsjáanleg.
Síðan kunna að vera íslensk lög með afleidda, stundum óljósa, tengingu við Evrópurétt sem íslenskir dómstólar telja, og hafa talið, að skapi þeim ákveðið svigrúm eins og áður er vikið að. Um þetta eru dæmi í dómum. Þetta svigrúm tel ég rétt og mikilvægt að varðveita en framselja ekki úr landi. Það myndi hins vegar gerast með samþykkt frumvarpsins.

Til þess að öðlast sögulegan skilning á framvindunni þarf að halda því til haga að í samningsgerðinni frá því í byrjun tíunda áratugarins er hamrað á því að yfirþjóðlegt vald Evrópuréttar nái ekki til stjórnarskrárinnar. Svo er einnig gert í orði kveðnu í greinargerð með þessari lagasmíð.
Stjórnarskrárákvæðin sem um er að ræða skipta máli að tvennu leyti að minnsta kosti. Í fyrsta lagi á þetta við um innleiðingu Evrópuréttar. Í umræðu um stjórnarskrármálið á kjörtímabilinu 2009-13 var augljóst að ESB sinnar á þingi vildu breytingar á stjórnarskrá til að taka af öll tvímæli um að heimilt og helst hnökralaust yrði að framselja löggjafarvald. Var horft öfundaraugum til norsku stjórnarskrárinnar að þessu leyti.
Hitt atriðið er svo spurningin um hvað gerist ef lýstur saman innleiddum EES rétti og íslensku stjórnarskránni. Í því sambandi vísa ég til þess dæmis sem áður er vikið að um tilraunir mínar sem ráðherra að takmarka möguleika EES þegna til að kaupa land á Íslandi.

Að lokum þetta: Ekki styrkjum við stöðu íslenskra almannahagsmuna með því að samþykkja lagafrumvarpið sem hér er til umfjöllunar. Þvert á móti kæmi það til með að veikja lýðræðislegt vald á Íslandi.

Að öllu þessu sögðu mæli ég eindregið gegn því að frumvarpið verði samþykkt.

Ögmundur Jónasson

--------------------------------------

Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.

Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/

(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.

To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)