STRAX MÁ SJÁ HVAÐ KOSIÐ HEFUR VERIÐ YFIR OKKUR – SORPA KOMIN Á DAUÐALISTANN
Á höfuðborgarsvæðinu hafa kjósendur sett til valda umbjóðendur fjármagnsaflanna. Þeim síðarnefndu má segja til hróss að þeir fóru ekki í grafgötur með það hverjir þeir væru, minntu á það meira að segja fyrir kosningarnar. Ég þakkaði Sjálfstæðisflokknum sérstaklega fyrir að minna á sig, vekja þar með athygli sem flestra á því að sjálfur væri hann víti til að varast.
Ég hef grun um að svo þreytt hafi fólk verið orðið á fráfarandi borgarstjórnarmeirihluta – ekki bara allra síðustu ár heldur til langs tíma – að það hafi ákveðið að kjósa þann meirihluta frá völdum ef svo má að orði komast.
En hafi fyrrverandi meirihluti verið hallur undir verktakaræði, afhent eigendum olíufélaga og öðrum fjárfestum eignir borgarinnar á silfurfati þá er nú farið úr öskunni í eldinn. Til valda er kominn pólitískur kjarni í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi og Mosfellssveit sem kveðst samstiga og tilbúinn í róttækar breytingar!
Í viðtalsþætti Mogga-manna við Orra Björnsson bæjarstjóra í Hafnarfirði og fleiri kom fram greinileg eftirvænting að geta farið að taka til hendinni og opna fjárfestum leið ofan í pyngjur almennings.
https://www.mbl.is/frettir/myndskeid/flokkur/innlent/266239/
Fyrsta fórnarlambið gæti orðið sorphirðan. Þessu var spáð hér á síðunni fyrir kosningar. Á henni má græða – fyrst samkeppni, síðan fákeppni og að lokum einokun.
Rekstrarlega er þetta galin hugmynd. Hér liggur í augum uppi hefði ég talið að nýta beri hagkvæmni samlegðarinnar. Látum það ekki slá okkur út af laginu þegar sagt er að Sorpa hafi þanist út. Að sjálfsögðu, varla hefur það farið fram hjá nokkrum manni að við erum farin að umgangast sorp á gerbreyttan hátt frá því sem áður var, þegar öllu var sturtað á haugana. Það var að sjálfsögðu fljótgert og kostnaðarlítið.
Brýnt er nú að almenningur geri það sem alltaf þarf að gera, berjast af alefli gegn gróðavæðingunni og milliliðunum. Við þurfum að gera nýkjörnum meirihlutum grein fyrir því að þótt fráfarandi meirihluti hafi verið kosinn frá völdum vegna þjónkunar við peningaöflin þá gefi það ekki nýjum stjórnendum grænt ljós á það að ganga lengra í því sem gagnrýnt var, það er að segja ganga erinda fjárfesta og fjárgróðafólks á kostnað almennings.
Ég á sæti í stjórn tiltekinna samtaka. Í verkahring stjórnar er að fara yfir ársreikninga. Þar má sjá það svart á hvítu hvernig reikningar sem áður voru á einni hendi, eins og fyrir rafmagnið, brunatryggingar og fleira eru nú á hendi margra mismunandi aðila og í sumum tilvikum fjölda milliliða. Hagkvæmara? Já, fyrir þann sem græðir. Ekki hinn sem greiðir.
Almenningur - við öll - verðum að skilja að ef við höldum ekki vöku okkar er raunveruleg hætta á ferðum. Sú hætta er þegar orðin sýnileg. Enda er Hildur borgarstjóri enn aftan á strætó, skælbrosandi yfir STRAX merkinu.
Almenningsþjónusta á að vera á vegum almennings ekki markaðar. Skrefin frá markaðsvæðingu til einokunar eru ekki mörg.
https://www.ogmundur.is/is/greinar/nei-sjalfstaedisflokkinn-hvorki-strax-ne-sidar
https://www.ogmundur.is/is/greinar/sjalfstaedisflokkurinn-minnir-a-gamla-tima
https://www.ogmundur.is/is/greinar/takk-sjalfstaedislokkur
--------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)