SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN MINNIR Á GAMLA TÍMA
Um alla Reykjavík blasa við auglýsingaskilti þar sem segir að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að gera allt strax verði hann kjörinn til valda. Þessu hótar oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir og brosir gleitt.
Varla lofar þetta góðu. Ég minnist þess að stundum áður hefur Sjálfstæðisflokknum legið á. Svo var til dæmis fyrir Alþingiskosningarnar haustið 1979. Þá var hrópað í Valhöll og á forsíðu Morgunblaðsins, Leiftursókn gegn verðbólgu og Báknið burt.
Þáverandi vopnabræður, Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson, sneru þessum slagorðum í einu vetfangi upp í andhverfu sína: Leiftursókn gegn lífskjörum. Kjósendur skildu þetta á sama veg og þeir Ólafur Ragnar og Svavar og ákváðu að gefa Sjálfstæðisflokknum frí. Það var vel ráðið. Mér segir hugur að ekki sé fólk eins vakandi nú og það var þá enda mikið verk að vinna í póltík á komandi árum. 
Á þessum tíma leiftursókna haustið 1979 var enn langt í það að Viðreisn klyfi sig út úr Sjálfstæðisflokknum enda ekki komið þá á dagskrá að koma þjóðinni inn í Evrópusambandið en af slíku offorsi hefur Viðreisn beitt sér í því máli síðustu mánuði að flokkurinn sér ástæðu til þess í sveitarstjórnarkosningunum nú að heita kjósendum því á flettiskiltum að flokkurinn muni Endurreisa traustið. Skiltin sýna fólk sem stendur á haus og þarfnist fyrir bragðið að verða reist við. Þetta er verðugt viðfangsefni fyrir Viðreisn en ekki auðvelt að sama skapi grunar mig.
Ég held að það sé rétt sem máltækið segir að góðir hlutir gerist hægt. En góðir hlutir þurfa þá að gerast en á markvissan og yfirvegaðan hátt. Með slíkum hætti þarf að tryggja félagslega aðkomu að húsnæðismálum og þá helst með því að stórefla Félagsbústaði með þeim opinberu styrkjum sem koma frá ríki og borg í stað þess að láta þá renna til annarra aðila eins og nú er farið að gera.
Þá þarf að efna til samstarfs með ríkinu og sveitarfélögum um leiðir til að gera láglauna- og millitekjufólki kleift að eignast húsnæði. Kaupleiguformið var að mörgu leyti gott og hlutdeildarlánin sem Frosti Sigurjónsson talaði fyrir og voru komin í framkvæmd að einhverju leyti voru einnig byggð á skynsamlegri hugsun að mínu mati.
Þá þarf að sjá til þess að borgin annist sjálf skipulag og allan rekstur á starfsemi á hennar vegum en útvisti ekki. Þetta er stórmál og þarf að endurskoða ákvarðanir sem mér sýnist hafi verið teknar í átt til útvistunar.
Margt hef ég gagnrýnt hjá borgarmeirihlutanum á undangengnum árum. En ef við erum í öskunni á ýmsum sviðum þá stefndi strax í eldinn með Strax-flokknum.

Strax-flokkurinn mun án vafa - komist hann til valda - grípa þegar í stað til ýmissa ráðstafana í þágu þeirra sem hann þjónar:
Einkavæða malbikun og sorphirðu, undirbúa útvistun á rekstri Borgarlínu til einkaaðila, til dæmis Kynnisferða, leggja niður Félagsíbúðir, greiða götu fyrirtækja sem vilja hagnast á leikskólarekstri, fækka starfsfólki í skipulags- og þjónustustörfum, halda áfram að fjölga milliðum; með öðrum orðum, sækja að almannarekinni velferðarþjónustu.
Þetta hét leiftursókn gegn lífskjörum árið 1979.
Og heitir það enn árið 2026.
---------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)