NÚ ER ÞAÐ LANDBÚNAÐUR OG ESB TIL UMRÆÐU FYRIR NORÐAN
Enda þótt samtökin Til vinstri við ESB standi fyrir fundinum sem boðað er til - og boðið er til - í Kakalaskála í Blönduhlíð í Skagafirði á sunnudag (12. apríl) er hann opinn öllum. Á sambærilegum fundi á Selfossi ekki alls fyrir löngu sögðu kunnugir að greina hefði mátt nánast allt pólitíska litrófið á fundinum.
Fundurinn er hugsaður sem upplýsingafundur en jafnfram til þess sniðinn að efla baráttu gegn því að Ísland verði innlimað í Evrópusambandið. Ljóst er að þeim fer fjölgandi sem leggjast gegn slíku ráðslagi sem í reynd yrði óafturkræft um langa framtíð. Ekki síst eru það vinstri menn sem eru að vakna til vitundar um það tangarhald sem auðvldið hefur náð á Evrópusambandinu. Hægri sinnað fólk sem hrís hugur við innlimun Íslands í ESB finnur sambandinu það til foráttu hve miðstýrt það er að orðið, lútandi fámennisvaldi, og ekki eru allir hægri sinnaðir markaðsmenn því fylgjandi að grundvallarinnviðum verði gert að lúta markaðslögmálum í þeim mæli sem Evrópusambandið krefst.
Ég hvet alla sem vilja kynna sér þessi mál, ræða þau eða einfaldlega finna fyrir samstöðu með samherjum að koma á fundinn á sunnudag.
-----------------
Athygli er vakin á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi þessarar heimasíðu á slóð sem hér er að finna: https://www.ogmundur.is/
Fréttabréfið er sent aðeins endrum og eins til áskrifenda þeim að kostnaðarlausu að sjálfsögðu.
Here you can subscribe to a newsletter from this homepage, free of charge of course: https://www.ogmundur.is/
(Ábending: Margir þeirra sem hafa viljað skrá sig á útsendingarlista fréttabréfsins hafa orðið fyrir því að fá ekkert viðbragð eftir skráningu. Skýringin hefur oftar en ekki verið sú pósturinn hefur hafnað í ruslpósti. Fólk gæti að þessu.
To be taken note of: Sometimes people who have wanted to subscribe to the news-letter (by pressing skrá netfang and by then giving their e-mail, netfangið þitt) have not got any confirmation. Usually this is because the reply has been directed to the trash bin. Be aware of this.)