Fara í efni

VONA AÐ ÁSTANDIÐ LAGIST

Tek heilshugar undir Pétri (23.12.2010). Er og hef verið eindreginn stuðningsmaður VG undanfarin ár. Eftir hryðjuverk Lilju og co. undanfarin misseri þá efast ég stórlega um að flokkurinn sé atkvæðis virði. Vona þó að þetta ástand lagist. Það er í lagi að vera með andstæðar skoðanir. Berjast fyrir þeim af hörku innan flokks og halda sínum sjónarmiðum á lofti. Síðan er haldin atkvæðagreiðsla eða tilteknum aðilum falið að komast að niðurstöðu, þá er það niðurstaða sem á að fylgja því að á endanum þá er stjórnarseta eðli málsins samkvæmt, málamiðlun margra þingmanna og ólíkra skoðana. Menn eiga að fylkja sér um lýðræðislega niðurstöðu meirihlutans en ekki vinna gegn henni. Maður er alveg gáttaður þessa dagana. Það er enginn að taka þessar erfiðu ákvarðanir að gamni sínu sbr. fjárlagafrumvarpið. Skora því á þig Ögmundur, reyndu að róa þetta lið. Fólk á frekar að segja, ég vildi fara aðrar leiðir, sbr. ... en þetta var niðurstaðan, málamiðlun sem ég styð. Eitt er á hreinu. Ef þessi stjórn springur út af hryðjuverkum innan VG minnihlutans, þá kýs ég þenna flokk aldrei aftur!!
Kristján

Þú vilt að fólk sætti sig við það sem meirihlutinn ákveður eða það "sem tilteknum aðilum" er "falið að komast að niðurstöðu um." Væntanlega áttu hér við Icesave. Spurningin er þá hversu lýðræðislega hefur verið komist að niðurstöðu í málum og þá einnig að skjóta málum til úrlausnar hjá "tilteknum aðilum".  Ef svo er ekki er varla hægt að ætlast til þess að fólk samþykki allt það sem fyrir er lagt. Átök hafa ekki bara verið um niðurstöður innan VG heldur hvernig þær niðurstöður hafa orðið til. Hvet til varfærni í fordæmingum en tek undir með þér um hitt, nefnilega að ástandið megi batna!
Kv.
Ögmundur