Fara í efni

VITA EKKI HVAÐ ÞEIR GERA!

Ögmundur! Reyndu með öllum ráðum sem þú kannt, að sporna við sölu Grímsstaða til útlendinga, sama hvaðan kaupandinn er. Þetta er ein landstærsta jörð Íslands og að hana eigi að hrifsa úr höndum þjóðarinnar er svo óþverralegt að engu tali tekur. Þessir menn sem um þetta mál fjalla á þingi og vilja selja, eru engir föðurlandsvinir, þeir vita ekki hvað þeir gera. Stattu með okkur sem viljum ekki sjá þetta verða að veruleika. Um þetta ætti hreinlega að kjósa.
Edda