Fara í efni

VIÐ VORUM BARA FIMM

Birtist í Fréttablaðinu 08.05.07.
Á þeim kjörtímabilum sem liðin eru síðan Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu saman ríkisstjórn vorið 1995 hefur mikið vatn runnið til sjávar. Í stað þess að framleidd væru 90 þúsund tonn af áli verða nú framleidd milljón tonn af áli og stefnir í enn meira – jafnvel þótt vitað sé að um er að ræða atvinnustarfsemi sem skapar minni virðisauka en flestar aðrar atvinnugreinar og veldur auk þess þenslu og okurvöxtum - að ógleymdum náttúrufórnunum. Kárahnjúkunum var fórnað, tekist var á um Þjórsárverin, Jökulárnar í Skagafirði og ekki er útséð um Skjálfandafljót, Brennisteinsfjöll, Landmannalaugar og aðrar náttúruperlur sem ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks rennir hýru auga til. Og nú á að selja Landsvirkjun og öll hin orkufyrirtækin! Kannski eignast Alcan eða Alcoa Landsvirkjun. Þá verður hægt að semja við sjálfan sig um orkuverð.  Ekki þarf að fjölyrða um misréttið sem hefur farið vaxandi í þjóðfélaginu í seinni tíð. Allir muna eftir Landssímasölunni, vatnafrumvarpinu, S-hópnum og einkavinavæðingunni og hinum staðföstu stuðningsmönnum Íraksinnrásarinnar. Kannski muna færri eftir frumvarpinu um auðlindir í jörðu þar sem einkaeignarrétturinn var færður langt niður í jarðskorpuna. Allir muna eftir afnámi húsnæðislaganna þar sem félagsleg úrræði voru strokuð út með þeim afleiðingum að efnalítið fólk á ekki lengur nokkurn kost á því að eignast húsnæði. Sjálfstæðisflokkurinn segir nú brýnast að einkavæða heilbrigðiskerfið. Misrétti fer vaxandi og mitt í allri velsældinni boðar stjórnmálaflokkur aðgerðaáætlun til að útrýma fátækt!
Sá flokkkur er að sjálfsögðu VG. Sami flokkur og hefur staðið vaktina undanfarin ár. Hve margir skyldu gera sér grein fyrir að við vorum bara fimm á þingi. Við hefðum verið öflugri helmingi fleiri að ekki sé minnst á fjórum sinnum fleiri, 20 talsins eins og þingmenn Samfylkingarinnar. Nú hræðast aðrir flokkar að VG kunni að eflast. Þorsteinn Pálsson ritstjóri þessa blaðs skrifar leiðara skelfingu lostinn yfir þeim möguleika að VG myndi ríkisstjórn. Hann segir Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu eiga vel saman. Þeir flokkar þurfi lítið að slá af til að ganga í eina sæng. En ég spyr: Væri það gott fyrir þjóðina að áfram yrði keyrð sama stefna – án undansláttar? Er ekki kominn tími til að fá svolitla hrygglengju í velferðar-, umhverfis- og utanríkismálapólitíkina á Alþingi? Væri það ekki til góðs að þingmannafjöldi VG á Alþingi yrði fjórfaldaður? Hugsum málið með reynslu undangenginna ára í huga.