Fara í efni

VG OG SAMFYLKING SAMEINI KRAFTANA

Sæll og blessaður Ögmundur.
Ég er sammála þér í mörgu sem þú skrifar og hef tekið eftir því að margt sem þú hefur bent á í gegnum tíðina hefur staðist. Maður trúði aldrei að þetta svínarí myndi ganga til lengdar. Þrátt fyrir að þessir fjárglæframenn séu kannski stærstu syndaselirnir þá eiga stjórnvöld og stjórnmálamenn ekki minna sök á því hvernig komið er.Þar bera Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn langmesta sök og fyrir það eiga þeir að gjalda. Ég skora á ykkur forustumenn í VG að hefja strax sameiningarviðræður við Samfylkinguna og sameina þessa flokka í einn stórann og öflugan vinstri miðjuflokk. Nú er lag og það er akkúrat það sem þjóðina vantar svo hér geti risið öflugt velferðaríki í framtíðinni. Í þessum flokkum eru langbestu og heiðarlegustu stjórnmálamenn þessa lands og ég tel að ef það eigi að ná að þroskast hér og dafna þjóðfélag byggt á jöfnuði,frelsi og réttlæti verði þeir að sameina krafta sína og stjórna uppbyggingunni sem framundan er.
Páll Valur Björnsson