Fara í efni

VARNARÁRÁSIR?

Sæll Ögmundur.
Æði oft er ég ósammála þér, en ég ber virðingu fyrir þér fyrir heiðarleika og einlægni í umræðu. - Varðandi fyrirspurn þína á Alþingi vegna síðustu atburða í Ísrael - Er það ekki skylda stjórnvalda þarlendra að vernda eigin borgara fyrir flugskeytaárásum?
Kær kveðja,
KB

Þakka þér bréfið og hlý orð. Mig langar til að biðja þig að lesa ræðu mína sem ég flutti á Lækjartorgi í dag og er birt hér á síðunni undir fyrirsögninni Lítum ekki undan.  Þar kem ég inná það sem þú gerir hér að umræðuefni. Í mínum huga snúast aðgerðir ísraelskra stjórnvalda ekki um varnir heldur eru eldflaugaárásirnar notaðar sem skálkaskjól til að þrengja að Palestínumönnum.
Með kveðju,
Ögmundur