Fara í efni

Vandi Byrgisins

Blessaður Ögmundur. Þú eins og aðrir landsmenn hefur eflaust lesið allar yfirlýsingar stjórnvalda, nú síðast Páls Péturssonar, um hvernig tryggja eigi starfsemina og ljúka því óvissu ástandi sem verið hefur í húsnæðismálum Byrgisins í Rockville. Það eru núna 80 manns í Rockville og okkur vantar pláss fyrir 20-30 strax. Ekki hefur komið króna frá ríkisvaldinu eftir áramót, gætir þú séð þessari fjölskyldu farborða?
Kveðja Jón Arnarr

Heill og sæll Jón Arnarr.Það er nokkuð um liðið síðan þú sendir mér þessa fyrirspurn og hefur mér nú borist annað bréf  frá þér síðan þar sem þú bendir á að vegna doða og áhugaleysis stjórnvalda hafi Guðmundur forstöðumaður Byrgisins lýst því yfir að vegna fjársveltis  þyrfti hann að útskrifa fjölda manns hvort sem honum líkaði betur eða verr. Þú minnir réttilega á að ábyrgðin sé okkar allra að leggja lóð á vogarskálarnar til að leysa vandann enda skorti ekki á velviljann í orði: “Ég minnist orða þinna og fleiri þingmanna og ráðherra bæði á þingi og í blöðum og í útvarpi. Þau voru öll á einn veg að bregðast skyldi fljótt við vanda Byrgisins.Nú er svo komið að janúarmánuði er að ljúka og ekki hefur heyrst hósti né stuna frá ríkisstjórn þessa lands né öðrum ráðamönnum. Endalaust er vísað til nefndar sem fjalli um málið og hún þvælir málinu út og suður um allar sveitir. Byrgið hefur enn ekki fengið eina krónu af fjárlögum ársins 2003 og í fréttum í dag á útvarpi Sögu lýsti Guðmundur forstöðumaður yfir að vegna fjársveltis þyrfti hann að útskrifa 20 manns úr meðferð, hvort sem honum líkaði það betur eða verr. Er þetta forsvaranlegt hjá einni ríkustu þjóð heims?”

Nei, þetta er ekki forsvaranlegt Jón Arnarr. Mér fannst stórtkostlegt að fá að koma á ykkar fund fyrir jólin og það sem ég hef heyrt af ykkar starfi er allt á einn veg og mjög lofsamlegt. Það er ekki á færi nema mikilla hugsjónamanna eins og ykkar að koma því í framkvæmd sem þið hafið gert en ekki er hægt að ætlast til þess af ykkur að þið gerið það ómögulega að framfleyta hinni “stóru fjölskyldu” án nokkurs stuðnings frá því samfélagi sem þið eruð að þjóna þegar allt kemur til alls. Þar með hef ég svarað spurningunni en hins vegar hef ég ekki gert mitt til að rísa undir þeirri ábyrgð sem þú réttilega segir að hvíli á herðum okkar þingmanna. Úr því mun ég reyna að bæta. Hér með sendi ég þér -“liðsforingjanum” – og öllum í liðinu baráttukveðjur.
Ögmundur