Fara í efni

ÚTRÁS, INNRÁS EÐA ÁRÁS?!

Sæll Ögmundur...
Það hefur mikið verið talað um útrás” með undrunarlotningu, jafnvel okkar greindi forseti notar hugtakið óspart. Og gráðugir glæpamenn auðvaldsins, okkar íslensku “Oligarchs” að hefð guðfeðra sinna erlendis, þá sérstaklega þeirra sem rændu Rússa eftir fall kommúnismans með aðstoð “sérfræðinga” frá Bandaríkjunum, nota hugtakið útrás sem nokkurskonar sönnun ágætis síns sem þarf ekki að skilja né ræða frekar.
Eins og bjöllurnar sem prófessor Ivan Petrovich Pavlov notaði á tilraunahundana forðum! Enda er hugtakið “ÚTRÁS”, hvatningarorð óþjóðlegrar hnattvæðingar auðvaldsins!
Á meðan að talað er um útrás hinna og þessara eins og að allir ættu að vita og skilja að um sé að ræða undraverðan dugnað “oligarchana” eða á íslensku, græðgissjúka peningabraskara, svartnæturafla og auðvalds, þá göpum við almenningur og sjúgum upp í nefið af undrunaraðdáun og þykjumst vita hvað þessi “undraverða útrás” sé, og ekki nóg með það, heldur hversu blessunarverð hún sé okkur og þjóðinni, og hversu hún lýsi dugnaði viðkomandi í útrásinni. Við skemmtum sem sé skrattanum eins og þeir sem þóttust ekki sjá berrassaða kónginn!
Ég vil fyrir mitt leyti viðurkenna að eina ÚTRÁSIN sem ég sé, er sú útrás sem glæpamennirnir sem eru að ræna sameignum íslensku þjóðarinnar, fá við að koma áformum sínum í framkvæmd bros á vör og glott á tönn!.
Nær lagi væri að tala um “innrás,” þegar auðvaldið ræðst inná eignir þjóðarinnar og hirðir þær fyrir skít á priki og græðir margfalt andvirðið  “sem þeir greiða” með tekjum eignanna samdægurs og “viðskiptin” fara fram.  Í raun þurfa þeir ekki að greiða eyri því það er hægðarleikur fyrir þá að fá bið á greiðslunum eða að fá stutt lán hjá guðfeðrum sínum og greiða það eftir kaupin sem margfaldast snögglega eins og var með bankana, símann og fleira, sem fólk má aldrei gleyma, og sem er nú að endurtaka sig með orkuna, vatnið, fiskimiðin og landeignir!
Ekki er aðeins um að ræða innrás og beinan þjófnað á sameignum allrar íslensku þjóðarinnar og niðja hennar, heldur svívirðilega árás á velsæmi og réttlætiskennd íslensku þjóðarinnar!

Það er hreint furðulegt hvernig spunameistararnir komast upp með að snúa sannleikanum í ranghverfu sína og gapandi almenningur kokgleypir allt með aðdáun!

Það sem nú er að ske verður að stöðva og snúa við!  Ef stjórnvöld gera það ekki, þá verða dómstólarnir að gera það!
Málið er að við verðum í raun að endurheimta allar eignir þjóðarinnar sem hefur verið stolið af henni, og vernda síðan og efla tilveruhagsmuni íslensku þjóðarinnar!
Það er ekkert athugavert að opinberar stofnanir eins og Landsvirkjun eða Orkuveitan taki að sér verkefni erlendis sem innanlands, né að einstaklingar setji á stofn fyrirtæki til að gera það sama, þá uppá eigin spýtur með eigin fjármagni! Að peningabraskarar fái aftur á móti að hirða eignir og stofnanir þjóðarinnar með húð og hári - starfsfólki og öllu innanborðs -  í þessu skyni, má ekki koma til greina!  Kæmust þeir upp með að stela sameignum þjóðarinnar og niðja hennar í nafniútrásar”, væri það beinlínis hlægilegt, ef það væri ekki sárgrætileg árás á eilífðarhagsmuni íslensku þjóðarinnar!  Þetta verður að leiðrétta!
Auðvita er þetta ekki eingöngu “Oligarchum” Íslands, sem sé óþjóðlegum peningabröskurunum að kenna, þetta er ekki síst íslenskum stjórnvöldum og löggjafanum að kenna!
Kær kveðja Ögmundur!
Helgi