Fara í efni

UM MEINT SVIK STJÓRNMÁLA-MANNA

Í síðustu kosningum var yfirlýst stefna vinstri grænna í evrópumálum að aðild kæmi ekki til greina, og þess vegna greiddi fjöldi Íslendinga þér og þínum atkvæði. En eins og algengt er með Íslenska stjórnmálamenn þá ganga þeir á bak orða sinna án þess að roðna og svik við þjóðina er ríkjandi meðal þeirra. Ég hef eina spurningu, hvað vita kúlulánahrapparnir sem fölsuðu efnahag banka og þjóðar um ykkur stjórnmálamennina, fyrst ekkert er hróflað við þeim.
Sigþór Guðmundsson

Ekki held ég verndarhendi yfir bröskurum.
Varðandi ESB-mál þá eru skoðanir mínar óbreyttar frá því fyrir kosningar. Reyndar hef ég aldrei verið því fráhverfari en nú að vilja ganga í Evrópusambandið. Sl. haust talaði ég fyrir kosningu um ESB.....og Nató með eftirfarandi hætti:
https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/audvitad-kjosum-vid-um-evropusambandid
https://www.ogmundur.is/is/fra-lesendum/kjosum-um-nato
Kv. ,
Ögmundur