Fara í efni

UM FERÐAKOSTNAÐ OG ANNAÐ

Sæll og blessaður Ögmundur.
Já dagpeninga og ferðakostnaðarmál eru umtöluð í fjölmiðlum og kanski ekki furða þegar hann er yfir 1.1 milljarður. Þarna greinir menn á hvers vegna eru þessir dagpeningar greiddir ráðherrum þótt ríkið greiði í raun allan ferðakostnaðinn. Það hefði mátt spyrja hver greiðir launakostnað ráðherra sem vinna um kvöld og helgar ásamt ferðum erlendis án þess að gera sérstakan reikning fyrir yfirvinnu hvað þá að bæta við sig heilu ráðuneyti. Þetta hefði verið kölluð þrælavinna eða af ættjarðarást en ekki vildi ég skipta.
Fargjöld eru dýr og þess vegna eiga ráðherrar að ferðast á Saga Class en aðrir þar fyrir neðan ráðuneytisstjórar sendiherrar áa almennu farrými eða næsta fyrir ofan sabr.útboð. Ferð á fyrsta farrými til Ástralíu eða álíka kostar yfir 1 milljón og menn leika sér ekki í slíkum farseðlakaupum. Forseti vor hefur það sem af er árinu verið í öllum heimsálfum og hlýtur farseðlakostnaður hans og frúarinnar að sprengja fjárveitingu embættisins. Sumar ráðstefnur eru þess eðlis að viðveru ráðherra eða fulltrúa hans krefst þess eða næsta yfirmanns en eflaust mætti nýta fjarfundarbúnað meira en gert er jafnt innanlands sem utan.
Ég er mjög ánægður með staðfestingu Hæstaréttar á brottvísun meðlims vélhjólagengis en það sama verður að ganga yfir aðra hættulega menn sem hafa komið og munu koma eftir áramótin þegar allt opnast á landamærum okkar enginn fylgist með.
Þór Gunnlaugsson

Þakka þér bréfið. Auðvitað á hið opinbera aðeins að greiða fyrir ferðakostnað og upphaldskostnað sendifólks á þess vegum og ekkert meira. þannig eru dagpeningar hugsaðir. Síðan finnst mér að eigi að kaupa jafnan ódýrustu miða sem völ er á og gildi þá einu hvort menn gegna ráðherraembættum eða öðrum stöðum.
Kv.,
Ögmundur