Fara í efni

U-BEYGJA VG

Þegar þessi ríkisstjórn komst til valda, voru það skilaboð til okkar þe. þjóðarinnar að allt ætti að vera uppá borðum. Ég hef ekki séð það og flest það fólk sem ég er í sambandi við sér það ekki heldur ! Þú hlítur að sjá það Ögmundur að flokkurinn sem við tókum þátt í að stofna á sínum tíma hefur tekið stóra U beigu og er ekki sjálfum sér samkvæmur. Margt það fólk sem tók þátt í að stofna flokkinn er ekki lengur í honum þar á meðal undirritaður. Ég sagði mig úr flokknum fyrir mörgum mánuðum síðan því ég tel Steingrím J. vera búinn að skemma mikið fyrir flokknum og hann þarf að víka sem fyrst. Ég mun aldrei stiðja flokkinn á meðan Steingrímur J. verður enn formaður. Kv.
Þórir Karl Jónasson