Fara í efni

TRÚNAÐARMÁL?

Sæll Ögmundur.
Athyglisvert að þinn flokkur sem er í oddastöðu í Hafnarfirði skuli nú hafa veðsett land bæjarins til þrotabú erlends banka. Þú hafnar Nubo sem ætlaði í uppbyggingu en þinn flokkur samþykkir afsal lands til vaxtamunaviðskipta! Svipað og í Icesave málinu framan af, er leyndarhyggjan um vaxtakjör og önnur atriði sláandi fyrir sjtórnmálaflokk sem boðar gagnsæi og allt upp á borðinu. Á einhver að trúa því að lánasamningur sveitarfélags við þrotabú gjaldþrota banka sé trúnaðarmál?
Arnar Sigurðsson