Fara í efni

ÞÖRF Á ÞJÓÐVARNAR-FLOKKI

Kæri Ögmundur...
Ég vil þakka fyrir sérstaklega góða grein Björns Jónassonar bróður þíns á vefsíðunni, hún hittir beint í mark á fjölda sviðum og ætti að vera öllum sem hafa áhuga á þjóðmálum að lesa vel og vandlega.  Hún ræðir um heilmikið grundvallarmál í stuttri grein.
Ég er einnig sammála flestu í lesendabréfadálknum undanfarið!
Flestir eru nú búnir að gera sér óþjóðlegt undirferli Samfylkingarinnar ljóst, enda fer ekki á milli mála. Einnig er eitt gegnsætt í stjórnmálum vorum, þó flest sé dulið, að svokallaðir VG kálfar með Steingrím J. Sigfússon í forustu eru að fremja stórsvik við stuðningsfólk flokksins og þjóðina með svikum og samvinnu með Samfylkingunni.
Ég er alls ekki að halda hér fram að sú ríkisstjórn sem tæki við af núverandi ríkisstjórn yrði hóti betri en sú sem nú tórir, en það má ekki vera eina ástæðan fyrir að núverandi svínarí haldi áfram.
Þess vegna hef ég verið að róa að því að þú og annað gott fólk stofnið nýjan flokk og hef ég persónulega mestan áhuga á að það verði endurnýjaður „ÞJÓÐVARNARFLOKKUR ÍSLANDS!"
Við verðum að koma löppunum niður á jörðina og segja skilið við erlendu hjáleiguhugsjónirnar og þá flokka sem halda þeim fram! Við verðum að losa okkur úr viðjum alþjóða hnattvæðingarsamsærisneti auðvaldsins, sem ætlar sér að gleypa heimsbyggðina!
Alþjóða auðvaldið, þ.e. kapítalisminn og alþjóða kommúnisminn, eru tvíburar af sama meiði og eiga vera hvorutveggja útlægir frá Íslandi!
Með þökk og virðingu!
Helgi