Fara í efni

ÞARF AÐ STINGA ALLRI ÞJÓÐINNI INN?

Kæri Ögmundur .
Helsta ástæða þess að Sovétríkin hrundu var sú að stjórnvöldum tókst illa að ná í alla þá geðveiku borgara sem gagnrýndu þau. Þau hefðu átt að ganga fram af miklu meiri hörku, jafnvel þó það hefði þýtt það að stinga inn allri þjóðinni.
Nú er til skítalýður sem veður uppi á Íslandi og gagnrýnir réttsýnan leiðtoga vorn á vikulegum fundum. Er ekki kominn tími til að Flokkurinn stofni lögreglulið til að hafa hemil á þessarri óværu og koma henni fyrir þar sem hún á heima. Þessi aðsúgur verður nú til þess að leiðtogi lífs míns á orðið erfitt með að ákveða stig stýrivexta eins og honum einum er lagið.
Sigmundur Guðmundsson, stærðfræðingur