Fara í efni

STELDU NÓGU MIKLU

Sæll Ögmundur - ég er ekki hissa á að þú sért hissa yfir rausnarlegum forgjöfum til hrunverja. Kannske kemst Magnús Eiríksson nálægt kjarna málsins í þessum orðum úr Þjóðarskútunni af disknum Von sem kom út liðið vor með okkur Mannakornum. Ef þú vilt vera þjófur, skaltu hlusta vel á mig. Steldu nógu miklu og þá semja þeir við þig. Þeir sem stela litlu skilja ekki baun, í hvernig kerfið virkar, og að lokum lenda inná Litla-Hraun.
mbkv.
Pálmi Gunnarsson