Fara í efni

SPURT UM FINNAFJÖRÐ

Frettablaðið
Frettablaðið
Birtist í Fréttablaðinu 22.09.16.
Hún var ekki fyrirferðarmikil Fréttablaðsfréttin fimmtudaginn fimmtánda september sl. um áform Þjóðverja um höfn í Finnafirði. Hún var ekki fyrirferðarmikil Fréttablaðsfréttin fimmtudaginn fimmtánda september sl. um áform Þjóðverja um höfn í Finnafirði. Alla vega var hún minni um sig en umfang áformanna gefur tilefni til.

Svona var fréttin

„Við upplifum þetta þannig að það sé að færast aukin alvara í þessi áform," segir Elías Pétursson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, um heimsókn fulltrúa Bremenports sem hafa verið að skoða uppbyggingu stórskipahafnar í Finnafirði. Haldnir hafa verið fundir með íbúum, landeigendum og sveitarstjórnarfulltrúum Langanesbyggðar og Vopnafjarðar undanfarna daga. "Fundirnir hafa verið mjög upplýsandi," segir Elías sem kveður góðan róm hafa verið gerðan að málinu. „En ég legg á það ríka áherslu að það er enginn viðskiptavinur kominn en trú þeirra á verkefninu virðist vera að aukast."
Svo mörg voru þau orð. Ég þakka Fréttablaðinu fyrir að hafa þó einhver orð um málið og hafði blaðið reyndar áður gert það í örfrétt níunda september sl. Í öðrum fjölmiðlum hefur ríkt grafarþögn alla vega síðustu vikurnar eftir því sem ég kemst næst. Í tilvitnaðri frétt er talað um upplýsandi fundi. Ég hvet fjölmiðla til að upplýsa betur um þá fundi og grafa auk þess undir yfirborðið. Áform um stórskipahöfn á norðausturhorninu er ekki málefni fámennra byggða einna. Heldur þjóðarinnar allrar.

Nú þarf að spyrja

Gott væri til dæmis að fá svör við eftirfarandi: Í eigu hverra er fyrirtækið sem rekur stórhöfnina í Bremerhaven? Telja menn skipta máli hverjir fjárfestarnir eru og hvað vakir fyrir eigendum?
Hver er talinn vera ávinningurinn af því fyrir íslenskt samfélag að reisa þarna stórskipahöfn?
Hve marga erlenda verkamenn þyrfti að flytja til landsins til að sinna verkefninu?
Kæmi samfélagið á svæðinu til með að ráða við að sinna innri uppbyggingu?
Er talið til hagsbóta að erlend fyrirtæki hafi á sinni hendi íslenskar hafnir, rekstur þeirra og jafnvel eignarhald?
Hver er talinn vera fjárhagslegur ávinningur fyrir þjóðarbúið, skiptir eignarhaldið máli í því samhengi?
Hver er talin vera mengunaráhætta sem fylgir stórskipahöfn á heimsvísu? Reikna fjárfestarnir hana út eða íslensk umhverfisyfirvöld?
Hvernig samræmast áform um að þjónusta skipaumferð um pólsvæðin alþjóðlegum skuldbindingum Íslendinga og markmiðum um verndun hafsins?
Hvert er eðli þeirra samninga sem sveitarfélagið hefur gert við Bremenports og hvort/hvernig kemur ríkissjóður að þessu verkefni?
Hefur ríkissjóður skuldbundið sig fjárhagslega til þess að liðka fyrir framkvæmdum í Finnafirði?
Hvernig samræmast þessi áform landsskipulagi?

Hvernig væri að ræða um Finnafjörð?

Í mínum huga eru fréttirnar frá Finnafirði hrollvekjandi í sjálfu sér. Alvarlegri er þó þögnin sem umlykur málið og síðan náttúrlega sinnuleysið. Hvernig væri að breyta því og taka svolitla umræðusyrpu um Finnafjörð?