SKULD EÐA VANRÆKSLA – VÍGBÚNAÐUR EÐA SAMFÉLAG
Við stórslysin lýsir þjóðfélagið inn í sálarlíf sitt. Þá sést sitthvað sem að jafnaði er hulið. Það gerðist sem endranær við sjóslysið hörmulega í vikunni. Í harmi sínum fékk þjóðin að sjá margt gott: Duglega sjómenn – afreksmenn! -, öflugt og ósérhlífið björgunarfólk – aftur afreksfólk!- og stjórnvöld sem kunna að sýna samkennd.
Allt er þetta gott og aðdáunarvert; öll vorum við skyndilega á sama báti þótt ekki væri nema andartak. En andartakið minnti á hvers virði samkennd og samstaða er.
Á sinn hátt er það líka gott sem komið hefur í kjölfarið og á enn eftir að koma, það er gagnrýnin greining á orsök og afleiðingu og hvernig á skuli haldið í framhaldinu. Slík umræða er nauðsynleg og aðeins til þess fallin að vera vel tekið.
Skilgreining á vanda skiptir máli
Ég heyrði ekki betur en að forsætisráðherra vísaði í “innviðaskuld“ þegar skortur á þyrlum bar á góma. Skuldin var þá sú að ekki hefðu verið keyptar þyrlur sem skyldi en bætt yrði úr þessari yfirsjón á kjörtímabilinu; að þetta væri yfirsjón því þyrlurnar væru nauðsynlegur viðbúnaðar til að bregðast við á örlagastundum, vörn gegn hvers kyns vá; mikið rétt varnarviðbúnaður!
Ég held reyndar að sleppa mætti öllu innviðaskulda-tali og segja sem er, að nauðsynlegt hefði verið að skera fjárveitingar til þyrlukaupa fyrir Landhelgisgæsluna við nögl því fjármunum ætluðum til „varnarmála“ hefði verið forgangsraðað á annan veg. Það kostaði nefnilega sitt að vígvæða heri, líka að líkna fórnarlömbum herja. Íslendingar hefðu varið nokkrum þúsundum milljóna til þessa austur í Úkraínu og því litið afgangs til þyrlukaupa á Íslandi. Og fram á síðustu stundu hafa ráðherrar verið að greina frá fjárstuðningi til vopnakaupa. Alþingi er þannig skipað að engin rödd er þar til þess að mótmæla fjárveitingum Íslendinga til vígbúnaðar.
Nýtt orð, ný hugsun
Og svo má skjóta því inn í framhjáhlaupi að hugtakið innviðaskuld var til skamms tíma ekki til í íslenskri tungu. Innviðaskuldin var fundin upp af Samtökum iðnaðarins sem samhliða kynningu á þessu nýja orði buðust til þess að aðstoða við að greiða niður „innviðaskuldina“. Það væri reyndar sáraeinfalt að gera með samstilltu átaki verktaka, útleigu undir opinbera starfsemi í húskynnum sem einkaaðilar gætu reist í snarhasti og með því að auðvelda fjárfestum aðgang að opinberri sjúkratryggingu – leysa mætti úr öllum vanda hratt og vel fyrir sanngjarna þóknun að sjálfsögðu – enda um að ræða sjálfa innviðina.
Það segir sig sjálft að ef innviðir samfélagsins yrðu gerðir heilir, hyrfi innviðaskuldin eins og dögg fyrir sólu.
Sá hængur er þó á að samfélagið yrði skuldugra fyrir vikið. Biðraðir við spítala styttust að sönnu, vegir yrðu sléttari en skuldastaða sveitarsjóða og ríkissjóðs hlypi upp í rjáfur.
Svo er það hin nálgunin
Vandann mætti svo aftur nálgast úr annarri átt, með því að horfast í augu við þá staðreynd að til eru sjúkrahús sem þarf að efla, vegir sem þarf að laga og skólar sem þarf að byggja. Svo þarf að gera tekjustofna ríkis og sveitarfélaga betur aflandi en á réttlátan hátt. Þar hefur flest gengið í ranga átt á undanförnum árum. Vilji menn halda sig við tungutak viðskiptabókhalds mætti eflaust tala um samfélagsskuld þegar talað væri um vangreidda skatta - eða skuld arðræningja við samfélag sitt.
Hvers konar varnir? Hverju skal varist?
Til sanns vegar má færa að kaup á björgunarþyrlum séu framlag til varnarmála eins og ítrekað má heyra á málflutningi ríkisstjórnar og ráðherra.
Á sinn hátt er þetta rétt sem fyrr segir og á að sjálfsögðu einnig við um samgöngukerfið, hafnirnar og vegina, ef þá ekki alla innviði í landinu. En þannig á líka að tala um þá, sem innviði samfélags, ekki stoðkerfi við hernað. Öflugt stoðkerfi samfélags stuðlar að öflugu og samheldnu samfélagi; samfélagi sem við sjáum gleðilega glitta í við áföll eins og sjóslysið hörmulega í vikunni.
Talað tveimur tungum
Til að gæta sanngirni þarf að sjálfsögðu að halda því til haga að þannig hafa ráðherrar líka iðulega talað heima fyrir; að viðbúnaður þurfi að miðast við þarfir í landi íss og elda. Á NATÓ fundunum kveður hins vegar jafnframt við annan tón, að Íslendingar séu með þessu móti að verða við kröfu „daddy“ í Washington um aukin hernaðarútgjöld; kröfu sem Evrópuríki NATÓ vilja ólm verða við. Styrking innviða Íslands sé í og með í þessum anda, til þess fallin að þjóna hervélinni sem vill fá til sín 5% af landsframleiðslu sem er á milli fimmtungs og þriðjungs af ríkisútgjöldum. Þannig er talað tveimur tungum.
Eigum of litla samúð afgangs
Á sama tíma og tugmilljarðar ganga til vígvæðingar heima og heiman fara varnir fyrir veika á Íslandi dvínandi og látið er undir höfuð leggjast að sjá Landhelgisgæslunni fyrir allra nauðsynlegustu tækjum. Inná við búum við yfir ríkri samúð en eigum lítið afgangs til Gaza. Það á ekki við um alla, fjarri lagi, en það á við um íslenska ríkið.
En þessu má breyta
Sjóslysið úti fyrir Austurlandi minnir á að sterkir félagslegir innviðir og réttlát skipti stuðla að öflugu samheldnu samfélagi. Takist slíku samfélagi að losa sig út úr blekkingarbókhaldi fjármagnsaflana og úr viðjum hernaðarhyggjunnar mun það einnig vera aflögufært um stuðning við bágstadda heima og heiman.