Fara í efni

SKAMMIST YKKAR

Þið stjórnarliðar berið ekki meiri ábyrgð á Alþingi en almennir þingmenn. Þess vegna er svosem ekki ástæða til að hamast meir á þér en öðrum með ákæruna á Geir Haarde. En það mál er allt að þróast með þeim hætti að það er öllum þeim til ævarandi skammar sem sitja á Alþingi og sérstaklega þeim sem voru að greiða atvkvæði út og suður með þeim hætti að einn maður sat eftir. Skammist ykkar þingmenn. Svo væri ekki verra ef þið sýnduð merki um einhverja iðrun en það er sennilega til of mikils mælst.
Elsa