Fara í efni

SEM NÆRING Í ÆÐ OFBELDISAFLA

KB segir hér í lesendabréfi að ekki megi horfa framhjá Hamas samtökunum þegar Ísrael er fordæmt. Þetta er nokkuð sem jafnan er notað til að réttlæta ofbeldi Ísraelsstjórnar. Auðvitað er til ofbeldissinnað og öfgafullt fólk á meðal Palestínumanna eins og í flestum samfélögum. Sú kúgunarstefna sem Ísrael hefur fylgt í áratugi er sem næring í æð slíkra afla.
Ísrael er hins vegar hinn raunverulegi gerandi á sama hátt og Suður-Afríkustjórn var hvað varðar aðskilnarstefnuna í Suður-Afríku. Andspyrnuhreyfingin, ANC, greip til vopna og framdi ódæðisverk. En hún var ekki hinn raunverulegi sökudólgur þótt ekki leggi ég blessun yfir neitt ofbeldi.
Sunna Sara