Fara í efni

SELJUM EKKI UNDAN OKKUR JÖRÐINA!

Sæll Ögmundur.
Ég fagna úrskurðinum varðandi Grímsstaði og þakka starfsfólki í ráðuneyti þínu fyrir að hafa staðið vörð um íslensk víðerni og ættjörðina. Það er mjög óviðkunnanlegt að hlýða á samfylkingarþingmenn blása í fjölmiðlum um það að ekki þurfi að fara að lögum í þessu máli, ætli þeim finnist þá að það sé óþarfi að fara að lögum svona yfirleitt ef það er meira á öðru að græða? Það er vægast sagt slæmt viðhorf og það er örugglega engin sérstök upphefð ef slíkt spyrst til fjárfesta úti í heimi eftir það sem hér gerðist árið 2008. Þeir verða endilega að fara að tala af meiri ábyrgð um hvað þeir hugsa sér með erlenda fjárfestingu hér, leiðin til farsældar getur ekki legið gegnum það að selja undan okkur jörðina. Bestu þakkir til ykkar,
Ásdís Kristinsdóttir