Fara í efni

SAMSTÖÐUFUNDUR Á SUNNUDEGI

Ástæða er til að minna á samstöðufund með almenningi í Palestínu þar sem okkur gefst kostur á að flykkja okkur á bak við þá kröfu að Ísraelsríki láti þegar í stað af árásastríði sínu á Gaza svæðinu. Ísraelsríki hefur ekki rétt - ENGAN RÉTT -  til að verja sig með þessum hætti. "Varnir" Ísraelsríkis í hafa í sjötíu ár fyrst og fremst falist í í ofbeldi og kúgun á saklausu fólki. Þessu verður að linna.