Fara í efni

SAMFYLKINGIN STUDDI KÁRAHNJÚKAVIRKJUN

Sæll Ögmundur.
Mér finnst ótrúlegt að sumir þingmenn Samfylkingarinnar hafi greitt atkvæði með Kárahnjúkavirkjun þrátt fyrir skort á upplýsingum, þeir hefðu betur greitt atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun vitandi það að það skorti upplýsingar en ég er ánægður með að VG greiddu atkvæði gegn Kárahnjúkavirkjun.
Bestu kveðjur,
Jón Þórarinsson

Hjartanlega sammála. Þú segir að sumir þingmenn Samfylkingarinnar hafi greitt atkvæði með Kárahnjúkavirkjun. Staðreyndin er sú að allflest þeirra voru fylgjandi Kárahnjúkavirkjun.
Kv.
Ögmundur.