Fara í efni

ÓSVÍFIN HVATNING TIL ÁFENGISNEYSLU

Auglýsingar ÁTVR, eru að mínu mati ólöglegar .Tjald-auglýsing með Árna Johnsen er mannskemmandi og svívirðileg. Hvað gengur áfengisverslun ríkisins til með þessum auglýsingum undanfarin ár? Það er ekki spurning, að þetta ríkisfyrirtæki er að auglýsa sína vöru. Í fyrra og í hitteðfyrra gerði þetta fyrirtæki svínum skömm til. Þegar fyrirtækið fór að líkja svínum við fyllibittur. Svín drekka ekki vín.
Auglýst var að fólk ætti ekki að drekka eins og svín, eða það var látið líta svo út að það væri forvarnar boðskapur í auglýsingunni. Svo var nú ekki. Í sömu auglýsingu var fólk hvatt til að drekka áfengi, þ.e.a.s. að drekka vín í hófi. M.ö.o., fólk var hvatt til að drekka vín en bara í hófi. Þessi stofnun lætur líta svo út að þessar auglýsingar séu birtar í forvarnarskyni en svo er ekki, því í auglýsingum er fólk hvatt til að drekka áfengi. M.ö.o. þá er auglýsingin ólögleg.
Nú er komin ný auglýsing sem eins og áður er birt með miklum móð rétt fyrir daga sem eiga má von á mikilli drykkju hjá 10 til 15% af þjóðinni, þá á útiskemmtunum. Viltu ekki bíða, uns þú verður tvítugur vinur??
Strákurinn í auglýsingunni er hvattur til að koma og kaupa sér áfengi þegar hann er orðinn 20 ára gamall. Hann er einnig áminntur um að hafa með sér skilríki svo hann fái afgreiðslu.
Hvernig stendur á því að ÁTVR stendur í gríðarlega mikilli auglýsingarherferð í tvær vikur fyrir verslunarmannahelgi? Það er auðvitað augljóst. Verslunin er að hvetja fólk til áfengiskaupa.
Ef þessi verslun hefði áhuga á því að stunda fornarstarf gegn drykkju myndi ÁTVR styrkja bindisfélög og aðra slíka aðila til þeirrar starfssemi. Þetta er ólöglegur áróður að mínu mati og hann er mjög svæsinn.
Ein megin ástæðan fyrir því að Íslendingar kjósa að reka þetta fyrirtæki og hafa einkasölu á víni á vegum ríkisins er að reyna með því að sporna við eða með því að minnka ofdrykkju í landinu.
Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi auglýsingu á þessari ósvífnu drykkjuhátíð. Stanslaus straumur til Eyja.
Kristbjörn Árnason