Fara í efni

ORÐSENDING TIL TÓNLISTARUNNENDA

Fyrir tónlistarfólki þarf vart að kynna hjónin Judith Ingólfsson og Vladimir Stoupel. Þau hafa haldið fjölda tónleika hér á landi. Bæði eiga þau glæstan feril að baki sem einleikarar en einnig hafa þau iðulega komið fram saman líkt þau gera á tónleikum í Hannesarholti á sunnudaginn, 14. júní klukkan 20:00.  Þar leikur Judith á fiðlu og víólu en Vladimir á pínaó.

Í stað þess að ég reyni að lýsa efnisskránni færi ég lesendum eftirfarandi slóð sem vísar á tónleikana og hvernig kaupa megi miða rafrænt standi vilji til þess. Eitt veit ég, að þarna verða mikil gæði í boði!

https://tix.is/event/21310/duo-ingolfsson-stoupel