NÝJUM VEFMIÐLI ÓSKAÐ VELFARNAÐAR
						
        			20.11.2008
			
 Það er fagnaðarefni að nýr vefmiðill skuli kominn til sögunnar smugan.is  sem vill „ leggja sitt að mörkum til lýðræðislegrar umræðu með því að veita þeim opinn vettvang sem ekki hafa átt greiðan aðgang að fjölmiðlum hingað til. Smugan vill vera róttækur málsvari fólksins í landinu þegar góð ráð eru dýr."

Ritsjórinn er ekki af verri endanum, Björg Eva Erlendsdóttir, ein vinsælasta fréttakona landsins og tvímælalaust í fremstu röð íslenskra fréttamanna. Björg Eva hefur langa reynslu að baki á RÚV, 24 stundum og fleiri fjölmiðlum og nýtur trausts fyrir vönduð vinnubrögð. 
Smugunni.is óska ég velfarnaðar. Landsmönnum óska ég þess að smugan.is komi til með að rísa undir ætlunarverki sínu! 