Fara í efni

MÚNKHÁSEN OG BAKKABRÆÐUR SAMEINAST

Merkilegt er að þegar ég áðan opnaði heimasíðu þína Ögmundur, þá höfðum við
hér í Snotru verið að ræða um það sama, nema við gleymdum Múnkhásen barón.
Vissulega er það gleðilegt að Bakkabræður og Múnkhásen hafi sameinast ríkisstjórn Íslands. En við hér í Snotru höfum meiri áhyggjur af því hvernig þeir félagar ætla greiða lánin, varla eiga mennirnir 67milljarða.
En hvað um það, ég kallaði í frúna og sagði henni að nú hefðu Bakkabræður og Múnkhásen sameinast.
Ekki stóð á svari hjá þeirri gömlu: “Þeir lenda þá báðir hengdir upp í
kirkjuturn ásamt ríkisstjórninni, þegar snjóa leysir eins og Múnkhásen
forðum.”
Runki frá Snotru