Fara í efni

MIKILVÆG OG LOFSVERÐ ÁKVÖRÐUN UM KOMUGJÖLD



Í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar var hafist handa um að koma upp sjóðsvélum á heilsugæslustöðvum landsins svo rukka mætti þau sem þangað leituðu vegna veikinda sinna. Að sögn þáverandi heilbrigðisráðherra var þetta ekki einvörðungu leið til fjáröflunar heldur talin vera til þess fallin að “auka kostnaðarvitund” sjúklinga og koma þannig í veg fyrir að fólk leitaði sér lækninga að óþarfa.

Þessi “röksemdafærsla” þótti ekki upp á marga fiska og hefur mætt andstöðu allar götur síðan enda svo komið að kostnaðarþátttaka sjúklinga á Íslandi nemur nú tæpum fimmtungi af heildarfjármögnun heilbrigðiskerfisins. Í könnunum hefur margorft komið fram að þessi þróun hafi valdið því að tekjulægsta fólkið veigri sér við að leita til læknis í veikindum sínum vegna kostnaðar. Þannig að til sanns vegar mætti færa að þar hafi pyngjan tekið að sér tyftunarhlutverkið sem sjóðsvélunum var ætlað.

Nú hefur Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, greint frá þvi að frá komandi áramótum verði ekki lengur innheimt komugjöld hjá öryrkjum og öldruðum á heilsugæslu og hjá heimilslæknum.

Með hliðsjón af því sem að framan greinir er hér um mikilvæga ákvörðun að ræða, skref í þá átt að vinda að fullu ofan af gjaldtöku í almannaheilbrigðiskerfinu.

Innleiðing sjóðsvélanna var óheillskref á sínum tíma. Hér er hins vegar stigið mikilvægt heillaskref sem ástæða er til að vekja sérstaka athygli á og fagna.

Eftirfarandi er fréttatilkynning heilbrigðisráðuneytisins:   

Hætt verður að innheimta komugjöld af öryrkjum og öldruðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum frá 1. janúar næstkomandi, samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Gildir það jafnt hvort sem um er að ræða komu á dagvinnutíma eða á öðrum tímum sólarhringsins. Gjald fyrir vitjanir lækna til aldraðra og öryrkja verður einnig fellt niður. Líkt og áður eru ekki innheimt komugjöld hjá börnum að 18 ára aldri.
„Þetta er mikilvæg aðgerð og liður í stefnu stjórnvalda um að draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu og auka á móti framlög hins opinbera. Þetta er einnig í samræmi við þá áherslu að efla hlutverk heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar fólks í heilbrigðiskerfinu“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Þak var sett á heildarútgjöld sjúklinga og ýmsar aðrar breytingar gerðar varðandi greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu með nýju greiðsluþátttökukerfi árið 2017. Þessi breyting hefur lækkað verulega útgjöld þeirra sem mest þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda og stuðlað að auknum jöfnuði meðal notenda heilbrigðiskerfisins. Heildarútgjöld sjúklinga í nýja greiðsluþátttökukerfinu eru um 1,5 milljörðum króna lægri á ársgrundvelli en þau voru áður og lækka enn frekar með niðurfellingu komugjalda öryrkja og aldraðra um áramótin.
Komugjöld almennra notenda í heilsugæslunni verða óbreytt að krónutölu á nýju ári og taka því ekki hækkunum í samræmi við breyttar verðlagsforsendur.
Komur öryrkja í heilsugæsluna eru um 55.000 á ársgrundvelli og komur aldraðra um 107.500, miðað við tólf mánaða tímabil frá miðju ári 2017 – 2018.”