Fara í efni

MIKIL MISTÖK!

Mér þætti gaman að vita Ögmundur hversu vel þú ert búinn að kynna þér þær greinar í skotfimi sem haldnar eru reglulega hér á landi. Þú ert greinilega ekki vel að þér í þeim málum, ég myndi t.d vilja benda þér á að keppt er í grein með grófum skammbyssum og krefst það mikillar hæfni, þar má telja t.d upp að gróf skammbyssa er hálfsjálfvirk 9mm.
Mér finnst þú vera að þrengja að okkur sem stundum þessa íþróttagrein og þetta sem og svo margt annað sem kemur frá þér mætti líkja við kommunistaríki. Nei, Ögmundur þarna held ég að þú sért að gera mikil mistök, þú verður að átta þig á því að byssa með boltalás er jafnhættuleg og hálfsjálfvirk byssa, og ekki er það byssan sem veldur slysum, nei kallinn minn það er sá sem ber vopnið.
Undirheimarnir geta útvegið það sem þá vantar burt sé frá þessu bulli sem þú ert að tala um í fjölmiðlum. Mæli ég með að þú kynnir þér þær ströngu reglur sem við skotvopnaeigendur þurfum að fara eftir.
Kv,
Gunnar Zebitz