Fara í efni

MENNING Í MUNAÐARNESI


Laugardaginn 20. júní  verður efnt til hefðbundinnar Menningarhátíðar BSRB í Munaðarnesi. Tilefnið er opnun málverkasýningar Ingibergs Magnússonar. Við opnunina mun Einar Már Guðmundsson, rithöfundur,  lesa úr verkum sínum og Þóra Einarsdóttir, óperusöngkona syngur við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur.
Mér hlotnast sá heiður að stýra hátíðinni  sem venju samkvæmt hefst  klukkan 14 og stendur í um klukkustund en þá er boðið upp á veitingar. Allir eru velkomnir og er kjörið að fá sér helgarbíltúr í Borgarfirði og koma við í orlofsbyggðum BSRB þar sem hátíðin fer fram.