Fara í efni

MÁLEFNI KEFLAVÍKURFLUGVALLAR EIGA AÐ VERA Í BRENNIDEPLI

Sæll Ég heiti Haraldur Magnússon. Víst eru Kárahnjúkar stór mál en af hverju heyrist lítið frá ykkur um mál Keflavíkurflugvallar? Það er mál sem þarf að tala meira um svo ekki fari illa.
Haraldur Magnússon

Sæll og þakka þér fyrir bréfið Haraldur. Ég er sammála þér að miklu máli skiptir hvernig til tekst um þróun Keflavíkurflugvallar og nýtingu mannvirkja þar. Löngu var fyrirséð að Bandaríkjamenn færu héðan af landi brott með sitt lið og flutti VG ítrekað þingmál um  málefnið. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ, ríkisvald, verkalýðshreyfing og fleiri aðilar hafa komið að umræðu um þetta málefni. Þar eiga menn okkar stuðning óskiptan. Sjá þingmál HÉR.
Kveðja,
Ögmundur