Fara í efni

LÝÐRÆÐIÐ ER Í HÚFI

Góð grein og þörf Ögmundur! Oft hefur verið nauðsyn en nú er nefninlega algjör þörf á róttækri greiningu á ástandinu hér hjá okkur. Þjóðin er lömuð ..... hvað næst! Nú hef ég alls ekki tekið virkan þátt í íslenskum stjórnmálum en hef fylgst grannt með síðastliðin nokkur ár. Í mínum huga er það stjórnsýslan /flokkakerfið sem aftrar því að heilbrigð þróun geti orðið. Við þurfum persónukjör og opið lýðræði. Ótrúlegt að virða þetta fyrir sér því gott fólk er þarna allsstaðar. Miðað við kyrrstöðuna svo skrýtið, síðan kemur sérhagsmunagæslan, fámennið og frænd/kunningjahyglin sem tvinnast saman, og gerir ómögulegt að taka á einu eða neinu ekki þar með sagt að engin sé að reyna. Grunnstoðir samfélagsins sjálft lýðræðið er í húfi. Ekkert nýtt þar!! Nýja stórnarskráin þarf lögfestingu Alþingis því án hennar verða ekki breytingar. Vildi lofa pistilinn þinn í Kjarnanum sem birtist í dag. Ef þessi ríkisstjórn heldur áfram þá er hætt við að Íslendingar fari í auknu mæli að flytja úr landi. Þessi ríkisstjórn vill ekki og ætlar engu að breyta.
Bergljót Kjartansdóttir