Fara í efni

LOKAÐIR INNI Í EIGIN HEIMI

Því miður er það svo að lífsverk Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar hefur reynst mesta þjóðníðingsverk Íslandssögunnar og er þessum báðum stjórnmálamönnum mikil vorkun. Þeir færðu örlög þjóðarinnar í hendurnar á gjörspilltum mönnum. Mönnum sem aldrei borga neitt, ekki einu sinni ríkisbankana sem þeim voru færðir á silfurfati fyrir smáaura. Stjórnarár Davíðs og Halldórs hafa einkennst af lygi, blekkingum, sukki og ringulreið. Og því miður er það svo að enn er til fullt af Íslendingum sem trúa afneitunarruglinu í Davíð og telja að útlendingar eigi að borga þennan "Barbarisma" Íslendinga. Það er fullt af þessum mönnum í mikilvægum embættum í þjóðfélaginu í dag og það verður að taka til. Dæmi: Baldur Guðlaugsson, gerðist sekur um "innherjasvik" af verstu gerð, hann er enn ráðuneytisstjóri! Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, lét sér koma það til hugar að gefa Björgólfi Þór eftir 3 milljarða af skuld við ríkið sem Björgólfur er í persónulegri ábyrgð fyrir. Finnur er enn bankastjóri og hefur ekki enn tekið ákvörðun um að gefa Björgólfi ekki þetta allmenningsfé. Það er mikilvægt að núverandi ríkisstjórn haldi og eitt af mikilvægustu verkefnum hennar er að skapa grundvöll fyrir umræðu- og rökræðupólitík á Íslandi og binda endi á fyrirgreiðslupólitík. -
Capítalía De Totula